Tónlist

Tónlist

Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Fréttamynd

Hætt saman en enn­þá vinir

Stórstjarnan Ariana Grande og leikarinn Ethan Slater eru hætt saman eftir þriggja ára samband. Þau felldu hugi saman við tökur á söngleikjamyndinni Wicked en heimildir vestanhafs herma að tvíeykið sé enn góðir vinir. 

Lífið

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Þre­föld út­gáfa Drake: „Þessi gaur er stærsti rappari allra tíma“

Drake hefur verið einn vinsælasti tónlistarmaður heims síðustu fimmtán ár. Lítið hefur þó farið fyrir honum síðan harðvítugar rappdeilur hans við Kendrick Lamar náðu hápunkti fyrir tveimur árum síðan. Þangað til um miðjan síðasta mánuð þegar Drake gaf út þrjár plötur sama daginn. Plöturnar ruku upp á topp vinsældarlista en viðbrögð gagnrýnenda hafa verið misjöfn. Vísir heyrði hljóðið í þremur dyggum rapphlustendum til að ræða plöturnar og stöðu Drake.

Tónlist
Fréttamynd

Talay Riley stunginn til bana í Lundúnum

Breski tónlistarmaðurinn og lagahöfundurinn Talay Riley, sem samdi lög fyrir tónlistarmenn á borð við Britney Spears, Usher og Chris Brown, er látinn, 35 ára að aldri, eftir að hafa verið stunginn margsinnis með hnífi í Silvertown í austurhluta Lundúna föstudaginn 5. júní.

Tónlist
Fréttamynd

„Aldrei of seint að gera hlutina“

Tónlistarhjónin Regína Ósk og Svenni Þór eru nýkrýndir Íslandsmeistarar í dansi en undanfarin misseri hafa þau einnig tekið til hendinni heima fyrir. Þar á meðal settu þau upp lítinn kaldan pott á pallinn og smíðuðu sér útisánu úr bjálkakofa. Vala Matt kíkti í heimsókn til þeirra hjóna í Kópavoginn í nýjasta þætti af Ísland í dag.

Lífið
Fréttamynd

Ein­mana­legt á­huga­mál fjögurra ís­lenskra stráka

Barbershop-kvartettinn og kórinn Fönn og Barbara halda fyrstu sameiginlegu tónleikana sína í Dómkirkjunni á morgun, föstudaginn 5. júní. Kórstjóri segir þetta hafa byrjað sem einmanalegt áhugamál en iðkendum hafi fjölgað og hópurinn stefni á útrás. 

Lífið
Fréttamynd

Pálmi fékk kröfum Bríetar vísað frá að mestu

Kröfum tónlistarkonunnar Bríetar Ísis Elfar á hendur þrotabúi Roks records, upp á tæpar átta milljónir króna, hefur verið vísað frá dómi vegna mikilla annmarka á kröfugerð. Pálmi Ragnar Ásgeirsson var eini eigandi Roks records og fór fram á frávísun málsins. Þrotabúið sjálft gerði ekki kröfu um frávísun en tók þó undir málatilbúnað Pálma Ragnars. Öðru máli þeirra á milli var þó ekki vísað frá.

Innlent
Fréttamynd

Peabo Bryson er látinn

Söngvarinn Peabo Bryson er látinn 75 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir að hafa sungið Óskarsverðlaunadúettinn „Beauty and the Beast“ með Celine Dion úr samnefndri kvikmynd og  „A Whole New World“ með Reginu Belle úr Aladdin.

Tónlist
Fréttamynd

Datt af sviðinu og beint í skurð

„Í gegnum tíðina höfum við alltaf sótt innblásturinn í gegnum góða tónlist, næturlífið og svínaríið. Það kemur ekki upp úr þurru að við köllum tónlist sveitarinnar sígarettu tónlist,“ segja strákarnir í hljómsveitinni Skröttum. Þeir voru að gefa út tónlistarmyndband við lagið Stressed sem þeir gerðu með Bang Gang, eða Barða Jóhannssyni.

Tónlist
Fréttamynd

„Stundum verður maður að segja fokk it“

„Þetta var bara fjarlægur draumur og ég þorði ekki einu sinni að hugsa um að það gæti gerst. Svo núna bara er þetta að fara að gerast og það er mjög súrrealískt,“ segir tónlistarmaðurinn Nói Klose sem hefur alla tíð elskað tónlist og er að fara að stíga á svið á Þingvöllum í júní.

Tónlist
Fréttamynd

„Við skoðuðum þennan markað og hann var allur í lausu lofti“

Tveir vinir sáu glufu á íslenskum viðburðamarkaði þegar kom að bókun listamanna. Þeir ákváðu að fylla upp í hana með bókunarsíðunni Outro þar sem er hægt að bóka listamenn með öruggu móti án milliliða. Nú þegar hafa 160 listamenn skráð sig hjá Outro og vinna þeir félaga í smáforriti.

Tónlist
Fréttamynd

Celebrating George Michael kemur til Ís­lands

Íslenskum áhorfendum gefst tækifæri á að sökkva sér ofan í áratugi af frábærum lögum þegar sýningin Celebrating George Michael kemur til Akureyrar og Reykjavíkur síðar á þessu ári sem flutt er af mögnuðum söngvara og hljómsveit sem er með upprunalegan bassaleikara Wham! innanborðs.

Lífið samstarf
Fréttamynd

Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni

Bandaríska söngkonan Sabrina Carpenter hefur farið fram á nálgunarbann gegn manni sem hún segir hafa birst við heimili hennar innan við sólarhring eftir að hafa verið handtekinn. Hann hafði reynt að þröngva sér inn um dyr heimilis hennar og þóst þekkja hana.

Lífið
Fréttamynd

Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega upp­sett og kostnaðar­samt prump“

Sýningar Bjarkar Guðmundsdóttur og James Merry eru framlag Listasafns Íslands til Listahátíðar í Reykjavík en þær hafa strax vakið umræðu. Listamaðurinn Snorri Ásmundsson segir sýningu Bjarkar „asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ og finnst honum sem sýningarstjórarnir hafi talið að nafn Bjarkar væri nógu stórt til að hylja hvað hugmyndafræðilegi grunnur sýningarinnar er veikburða.

Menning
Fréttamynd

Syngjandi dúx

Ína Berglind Guðmundsdóttir er dúx Menntaskólans á Egilsstöðum. Hún brautskráðist af náttúrufræðibraut með meðaleinkunnina 9,92. Alls voru 47 nemendur brautskráðir frá ME laugardaginn 23. maí. 

Innlent
Fréttamynd

Ís­lenskur tónlistararfur loksins að­gengi­legur öllum

Nótnaveita Tónlistarmiðstöðvar, stærsta nótnasafn landsins, er nú í fyrsta sinn aðgengileg á íslensku á síðunni notnaveita.is. Síðan sem var áður í umsjón Íslenskrar tónverkamiðstöðvar opnaði í fyrra undir stjórn Tónlistarmiðstöðvar á ensku og er nú loksins opin almenningi á íslensku.

Tónlist
Fréttamynd

Halla T og Björk í stuði á Lista­há­tíð

Menningarlífið iðar sem aldrei fyrr í Reykjavíkurborg en um helgina opnaði Listahátíð með pomp og prakt með viðburðum víða um bæinn. Fjöldi fólks kom saman að fagna listinni og lífinu og gleðin var við völd.

Lífið
Fréttamynd

Hugsum stærra

Það má færa rök fyrir því að leika í eða með hljómsveit endurspegli samskiptareglur samfélagsins – eða kannski öllu heldur hvernig þær ættu að virka. Hljómsveit er skipuð ólíkum hljóðfærahópum sem allir hafa sitt hlutverk, sína rödd.

Skoðun
Fréttamynd

Dua Lipa gekk að eiga sinn heitt­elskaða

Breska tónlistarkonan Dua Lipa gekk í það heilaga í dag en hún og breski leikarinn Callum Turner voru fyrst orðuð við hvort annað snemma árs 2024 og staðfestu trúlofun sína í júní 2025. Athöfnin þótti verulega látlaus og var haldin í Old Marylebone Town Hall í London, sunnudaginn 31. maí.

Lífið
Fréttamynd

„Sögu­legt augna­blik“ fyrir þýska klúbba­menningu

Stjórnvöld í Þýskalandi hafa gert breytingar á byggingarreglugerðum þannig að næturklúbbar séu flokkaðir með öðrum hætti en aðrir afþreyingarstaðir fyrir fullorðna. Rekstraraðilar fagna breytingunni en óttast sumir að hún komi of seint. 

Lífið
Fréttamynd

Mugison þakkar inni­lega fyrir sig

Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, vann til verðlauna í gær en hann hlaut Eddu fyrir tónlistina í þáttunum Felix & Klara. Hann segist ekki hafa verið að búast við verðlaununum en að það hafi verið algjör unun að geta unnið ásamt Ragnari Bragasyni og þakkar einnig fjölda fólks sem kom að verkinu.

Tónlist
Fréttamynd

Stefán Jökuls­son er látinn

Stefán Jökulsson, fyrrverandi lektor við menntavísindasvið Háskóla Íslands, útvarpsmaður og tónlistarmaður, er látinn, 76 ára að aldri.

Innlent
Fréttamynd

Segir gagn­rýnina til marks um normalíseringu barnagirndar

Poppstjarnan Olivia Rodrigo er vægast sagt ósátt við gagnrýni um að kjóllinn sem hún klæddist í tónlistarmyndbandi við lagið „Drop Dead“ geri hana barnslega. Tónlistarkonan telur slíka gagnrýni til marks um það hvernig barnagirnd er normalíseruð í menningunni.

Tónlist
Fréttamynd

Þing­vellir stærsta verk­efni Kaleo frá upp­hafi

Kaleo snýr aftur heim í sumar eftir að hafa spilað á stórum sviðum víða um heim og orðið ein þekktasta íslenska rokksveit síðari ára. Hljómsveitin segir tónleikana Bergmál á Þingvöllum í sumar þó vera í sérflokki.

Lífið