Menning

Tónleikar og ljósmyndasýning

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Þau Eyþór Ingi og Elvý fjalla um sólina sjálfa á tónleikum sínum þetta árið.
Þau Eyþór Ingi og Elvý fjalla um sólina sjálfa á tónleikum sínum þetta árið.
„Í ár höfum við ferðast um og flutt kvæðið um sólina,“ segir Eyþór Ingi Jónsson sem er að ljúka ferð um Norðausturland með Elvý Hreinsdóttur. Síðustu tónleikarnir verða í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri í kvöld, 27. nóvember, og hefjast klukkan 20.30.

Hugmyndin að tónleikunum er svipuð hugmyndinni að öðrum tónleikum sem þau skötuhjú efndu til í fyrrahaust. Þá ferðuðust þau um með Kvæðið um fuglana og fluttu efnisskrá með lögum sem fjölluðu á einn eða annan hátt um fugla. Um leið sýndu þau ljósmyndir sem þau tóku sjálf af fuglum og umhverfi þeirra.

Nú er ljósmyndum einnig varpað á tjald og tengjast þær allar lögunum sem þau flytja. Því er bæði um tónleika og ljósmyndasýningu að ræða.

Efnisskráin er fjölbreytt. Á henni eru þjóðlög og vísnalög frá Norðurlöndunum og Úkraínu, dægurlög frá Frakklandi og Íslandi, örlítið kántrí, djass, og gamalt íslenskt sönglag.

Birkir Blær Óðinsson, 14 ára gítarleikari, verður gestur á tónleikunum. Undirleikur er á píanó, gítar, bassa, bouzouki, dulcimer og ýmiskonar slagverk.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×