Sport

Tónleikar Justin Timberlake: 20 þúsund dósum stolið af HK-ingum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Fólk helti í sig vökva af öllum tegundum á tónleikum Justin Timberlake í Kórnum.
Fólk helti í sig vökva af öllum tegundum á tónleikum Justin Timberlake í Kórnum. Vísir/Andri Marinó
„Maður er hræddur um það,“ segir Torfi Jóhannsson, verkefnisstjóri hjá HK, í samtali við Vísi. Fjáröflun Kópavogsliðsins í kjölfar tónleika Justins Timberlake í Kórnum á sunnudaginn virðist hafa farið út um þúfur.

HK-inga rak í rogastans í Kópavoginum í morgun þegar í ljós kom að búið var að stela jafnvirði 300 þúsund króna af dósum og flöskum í svörtum ruslapokum sem geymdir höfðu verið fyrir aftan Kórinn sunnanmegin. Sjálfboðaliðar á vegum félagsins höfðu unnið í tvö kvöld að því að tína upp allar dósirnar sem 17 þúsund tónleikagestir skildu eftir sig á tónleikum bandaríska tónlistarmannsins.

„Þetta verk var mikið og mannfrekt og tók tvö kvöld fyrir fjölda sjálfboðaliða félagsins. Allur ágóðinn átti að renna til deilda félagsins,“ segir á heimasíðu HK.

Í morgun átti að ná í dósirnar og fara með í endurvinnslu þegar þjófnaðarins varð vart. Biðla HK-ingar til þeirra sem urðu varir við mannaferðir í nótt að láta HK-inga vita til þess að auka líkurnar á því að ná verðmætum félagsins til baka.

Torfi var á uppgjörsfundi vegna tónleikanna þegar fréttamaður náði af honum tali. Aðspurður hvert tjónið væri fyrir íþróttafélagið sagði hann mat þeirra vera um 300 þúsund krónur. Það svarar til 20 þúsund dósa og flaskna miðað við 15 krónu skilagjald.


Tengdar fréttir

Launalausir leikmenn standa vaktina

Leikmenn karlaliðs HK á næstu leiktíð spila án þess að þiggja laun. Margir lykilmenn hafa yfirgefið félagið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×