Innlent

Tónleikar fyrir Gálgahraunsfólk á dagskrá

Jakob Bjarnar skrifar
Fjöldinn allur af tónlistarfólki mun koma frá á tónleikum sem haldnir verða til styrktar nímenningunum sem dæmdir voru vegna mótmæla í Gálgahrauni.
Fjöldinn allur af tónlistarfólki mun koma frá á tónleikum sem haldnir verða til styrktar nímenningunum sem dæmdir voru vegna mótmæla í Gálgahrauni.
Vísir greindi frá herhvötBubba Morthens til tónlistarmanna um að halda styrktartónleika. Þetta var í kjölfar dóms yfir níumenningunum sem mótmæltu vegaframkvæmdum í Gálgahrauni á Álftanesi. Bubba fannst og finnst dómurinn fáránlegur og hann lætur ekki sitja við orðin tóm. Búið er að ákveða stað og stund: Háskólabíó 29. október. Það er rétt rúm vika í tónleikana og þegar hefur fjöldi tónlistarmanna staðfest þátttöku sína. Viðbrögðin við þeirri umleitan hafa undantekningalaust verið mjög góð.

Að sögn Bubba ætla hinir ástsælu Spaðar að koma fram en forsöngvari þessarar menntuðu hljómsveitar landsins er Guðmundur Andri Thorsson rithöfundur og ritstjóri. „Ég kvabba kannski á honum um að halda erindi líka. Annars á þetta alls ekki að vera formlegt. Það er svo leiðinlegt,“ segir Bubbi sem hefur gengið frá því að Ómar Ragnarsson, sem var meðal þeirra sem handteknir voru í Gálgahrauni, verði kynnir.

Og Bubbi heldur áfram að telja upp þá sem ætla að koma fram. Helsta stjarnan nú er Unnsteinn Manúel og hann er klár. „Salka Sól og hennar band er staðfest, og nánast öruggt með að Snorri Helga verði með líka. KK er búinn að staðfesta. Og ég bíð eftir svari frá Mugison og Moses High Tower.“

Bubbi spaugar með að ef ekki takist að fylla Háskólabíó þá lendi hann sjálfur í veseni. En, ef um verður að ræða áfrýjun í málinu, setur það ekkert strik í reikninginn?

„Ég átta mig ekki alveg á því. Neinei, ég held að ég fái einhvern góðan lögfræðing til að taka að sér peningamálin og geymi þá aurinn á bók. Svo sjáum við til hvort þau vinni ekki málið. Þá gefum við einhverjum sem á þarf að halda innkomuna.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×