Lífið

Tónleikar Biebers velta rúmlega 600 milljónum

Jakob Bjarnar skrifar
Áætlað er að 12 prósent þjóðarinnar sæki tónleika Biebers, sem er alveg örugglega heimsmet. Ísleifur segir þetta setja tónleikahald á Íslandi í nýtt samhengi.
Áætlað er að 12 prósent þjóðarinnar sæki tónleika Biebers, sem er alveg örugglega heimsmet. Ísleifur segir þetta setja tónleikahald á Íslandi í nýtt samhengi.
„Það er óhætt að segja að allt sé brjálað og þetta brjálæði hefur staðið lengi,“ segir Ísleifur Þórhallsson tónleikahaldari hjá Senu.

Nú klukkan tíu hefst sala miða á aukatónleika tónlistarmannsins Biebers og er skjálfti í mannskapnum. Miðar á fyrri tónleika hans seldust upp á augabragði. Er gert ráð fyrir því að miðar á aukatónleikana muni fjúka út einnig. Gróft reiknað, miðað við fjölda miða og verð þeirra, velta einir tónleikar rúmlega 300 milljónum og tvennir þá rúmlega 600.

Súrrealísk tölfræði

Ísleifur segir þessa tónleika sögulega og rammar algerlega upp á nýtt hvað er hægt að gera á Íslandi. „Nýjar upplýsingar fyrir alla að það sé hægt selja 40 þúsund miða á eina tónleika. Enginn tónleikahaldari á Íslandi hefur látið sér detta í hug að það sé hægt.“

Ísleifur hefur aldrei upplifað annað eins þau tuttugu ár sem hann hefur staðið í tónleikahaldi. Hann segist hafa haldið vel heppnaða tónleika og miður en þetta sé algerlega á nýju plani. „Um 40 þúsund manns að koma á tónleika á Íslandi. Þetta eru 12. prósent þjóðarinnar. Þetta er alveg örugglega heimsmet. „Tölfræðin er súrrealísk.“

Ísleifur segir alla atburðarrásina hafa verið súrrealíska. Bieber sjálfur hafi verið spenntur að koma til Íslands, en spilar það örugglega inní að hann var hér á ferð fyrir nokkrum mánuðum og tók þá upp myndband sem Ísleifur fullyrðir að sé milljarða virði fyrir Ísland, þá sem landkynning. Bieber er einn vinsælasti tónlistarmaður sögunnar.

Ótrúleg atburðarás

„Ein stærsta stjarna samtímans og allstaðar er uppselt á tónleika hjá honum. Annars hefur þessi atburðarás verið með ólíkindum. Við tilkynntum um tónleikana 9. og það var eins og maður hafi varpað sprengju á landið. Fórum í sölu þann 19. og þá kom þessi svakalega umframeftirspurn og þessi læti. Svo tókst að landa aukatónleikum og sala hefst nú klukkan tíu. Þetta er súrrealísk atburðarás," segir Ísleifur. Og hann heldur áfram að lýsa þessum undrum í eyru blaðamanns Vísis:

„Að halda 19 þúsund manna tónleika í 330 þúsund manna landi, maður myndi halda að það væri nógu mikil áhætta... en það varð uppselt. Mikill tilfinningahiti hjá þessu fólki sem ekki fékk miða, það varð allt brjálað. Okkur óraði ekki fyrir því að það væri grundvöllur fyrir því að halda aukatónleika og og að það væri möguleiki. Ekkert land getur bætt við aukatónleika nema Ísland, þar sem hann byrjar tónleikaferð sína. Þess vegna gátum við sett aukatónleika fyrir framan,“ segir Ísleifur. Hann bætir því við að Bieber sé spenntur fyrir tónleikunum; hann og hans menn hafi ákaflega gaman að þessum látum og tölfræðinni í kringum tónleikana, sem sannarlega er með miklum ólíkindum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×