Tómir kofar

Fréttablaðið Fastir pennar 02. febrúar 2012 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Stutt en áhugaverð umræða fór fram um EES-samninginn á Alþingi fyrr í vikunni. Tilefnið var skýrsla norskra stjórnvalda um samninga Noregs við Evrópusambandið. Þar er meðal meginniðurstaðna að EES-samningurinn hafi verið norskum hagsmunum mjög til framdráttar en hins vegar felist í honum verulegt fullveldisafsal, á mun víðtækara sviði en menn sáu fyrir í upphafi, enda taki reglur ESB nánast sjálfkrafa gildi í Noregi án þess að norsk stjórnvöld geti haft á þær áhrif. Í þessu felist sömuleiðis mikill lýðræðisvandi.
Í umræðunum á Alþingi virtust þingmenn almennt taka undir þessa niðurstöðu og að hún ætti líka við um Ísland; þ.e. að í EES-samningnum fælist umtalsvert fullveldisframsal. Það vekur hins vegar athygli að í þessu efni var komið að tómum kofunum hjá yfirlýstum andstæðingum Evrópusambandsaðildar. Þeir höfðu lítið sem ekkert fram að færa um það hvernig mætti bæta úr þeim vanda.

Þannig lagði enginn þeirra til að EES-samningnum yrði sagt upp, enda átta sig líklega flestir á því að það væri ekki íslenzkum hagsmunum til framdráttar. Vigdís Hauksdóttir þingmaður Framsóknarflokksins vildi hins vegar að íslenzk stjórnvöld yrðu duglegri að nota neitunarvaldið, sem þau hafa í orði gagnvart nýrri löggjöf frá Evrópusambandinu. Frá upphafi hafa flestir þó verið sammála um að því valdi yrði ekki beitt, að minnsta kosti ekki sem neinu nemur, vegna þess að þá væri botninn dottinn úr hinu sameiginlega efnahagssvæði með sameiginlegum reglum, sem samningurinn gengur út á.

Ragnheiður Elín Árnadóttir, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins, rifjaði upp niðurstöðu nefndar sem skilaði af sér 2007 og hvatti til þess að leiðir til áhrifa á Evrópulöggjöfina, sem Ísland hefur samkvæmt EES-samningnum, yrðu nýttar betur, til dæmis með því að taka aukinn þátt í starfi nefnda ESB og mæta á fundi rúmlega 400 nefnda í stað 200.

Þetta myndi reyndar útheimta umtalsverð fjárútlát og mun meiri íslenzkan mannskap í Brussel. Í þessu samhengi má nefna að þótt það hafi kannski verið ofmælt hjá Ásmundi Einari Daðasyni þingmanni Framsóknarflokksins í umræðunum að Noregur sé „gríðarlega stórt og öflugt ríki" þá eru Norðmenn talsvert fleiri og ríkari en Íslendingar. Þeir hafa margfalt fleiri embættismenn í því að reyna að hafa áhrif á kerfið í Brussel. Það breytir ekki niðurstöðu norsku skýrslunnar um fullveldisafsalið.

Það er rétt hjá málshefjandanum, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur, að þeir sem hafa áhyggjur af fullveldisafsali þegar rætt er um hugsanlega aðild Íslands að Evrópusambandinu ættu að vera sjálfum sér samkvæmir og gera eitthvað við fullveldisafsalinu sem felst í EES. Ef þeir vilja ekki segja samningnum upp, er rökrétt niðurstaða að stíga skrefið inn í ESB til þess að fá raunveruleg áhrif á þær ákvarðanir, sem við munum þurfa að hlíta hvort sem er. Eins og umræðan á þingi sýndi, er djúpt á lausn sem liggur á milli þessara kosta.

Það er algert lágmark að Alþingi taki einhverja afstöðu til þess vanda að núverandi staða er augljóst brot á stjórnarskránni. Úr því mætti bæta með því að setja í hana ákvæði sem heimilar að framselja ríkisvald til alþjóðastofnana. Slík stjórnarskrárbreyting er nauðsynleg, hvort sem Ísland gengur í ESB eða ekki.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Bankablús

Viðbúið var að rekið yrði upp margraddað ramakvein þegar Landsbankinn tilkynnti um uppsagn...  

Meira
Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Á Heimaey betur heima í ríkissjóði?

Ný Heimaey í eigu Ísfélagsins kom fyrir skömmu til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Margir hr...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Tómir kofar