Skoðun

Tómbólujól á útsöluprís 6. janúar fyrir öryrkja og aldraða!

Helga Björk Magnúsd. Grétudóttir skrifar
Í Taílandi ganga menn í lörfum á jólum til minnast eins mesta meistara veraldarsögunnar, Jesú Krists sem var meinlætamaður.

Ég velti því fyrir mér hvort prestar, biskupar, alþingismenn, hæstaréttardómarar og ríkisforstjórar muni ganga í lörfum um þessi jól, til að sýna samhygð sína gagnvart þeim sem minna mega sín og dansa í kringum gullkálfinn.

Mér þótti Bjarni Benediktsson hafa himin höndum tekið, þegar hann áttaði sig á að hið norska kjararáð tæki hinu íslenska fram. Því Norðmönnum þykir sjálfsagt og eðlilegt að öryrkjar og aldraðir séu undir verndarvæng hins norska kjararáðs.

Trölli hefur margsinnis stolið jólunum frá þeim er minna mega sín.

En hver er Trölli? Er það Alþingi Íslendinga eða bankakerfið?

Ég hvet alla öryrkja og aldraða til að sleppa þessu jólafári, sem er ímynduð vitleysa í höndum kaupahéðna.

Höldum jól á útsöluprís 6. janúar 2017. Þó svo við vitum að Jesú Kristur fæddist á annarri árstíð. Látum ekki blekkjast.

Undirrituð er að dunda sér við að hringja í alþingismenn og bjóða þeim að gefa háttvirtum öryrkjum og öldruðum kjararáðshækkun sína, að fyrirmynd forseta Íslands, Guðna Th. Jóhannessonar.

Mun forseti vor einnig nýta forsetabílinn R 1 til að færa þeim mat, árið um kring sem bágstaddir eru?

Mér er mjög vel tekið af þeim flestum. Það er verulega spennandi að vita hvaða stjórnmálaflokkur verður gjafmildastur.

Munu prestar, sveitarstjórnarmenn, embættismenn og forstjórar ríkisfyrirtækja sem þiggja laun frá Kjaranefnd ánafna hækkun sinni til þeirra er minna mega sín? Eða eru þetta eigingjarnir sjálfselskupúkar og síngjarnir?

Sárt er til að vita að umboðsmaður Alþingis, sem hefur rúmlega 1,7 miljónir á mánuði, kvarti undan því að hafa ekki nema 18 milljónir á ársgrundvelli til að sinna frumkvæðismálum.

Hjálparstofnana er þörf á tímum náttúruhamfara.

Leggjum niður hjálparstofnanir og förum að 76. gr. stjórnarskrárinnar. En þar segir að allir Íslendingar eigi rétt á fæði, klæði, húsnæði og menntun við hæfi.

 

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Sjá meira


×