Heilsa

Tómatar og titrarar

sigga dögg kynfræðingur skrifar
Ef skortur er á býflugum í gróðurhúsinu má grípa í næsta titrandi kynlífstæki.
Ef skortur er á býflugum í gróðurhúsinu má grípa í næsta titrandi kynlífstæki. Mynd/Getty
Hver hefur ekki lent í því að reyna að rækta fallega tómata eða framandi plöntu en ekkert gengur?

Hugsanlegar ástæður gætu verið skortur á býflugum en lausnin gæti verið inni í svefniherbergi.

Sum blóm þurfa á titringi býflugna að halda til að ná að frjógvast eða dreifa frjókornum sínum en nýlega hefur borið á skorti á býflugum (í heiminum) til að sjá um þetta hlutverk.

Vísindamenn hafa því gripið til þess ráðs að nota titrandi kynlífstæki til að líkja eftir þessum titringi býflugunnar til að örva plönturnar.

Þetta ku vera þekkt ráð í Ástralíu og í einhverjum gróðurhúsum í Kaliforníu í Bandaríkjunum.

Svo ef þú hefur áhyggjur af því að vera ekki með græna fingur þá gæti lausnin verkað einkar hvetjandi til að gerast garðyrkjuunnandi með því að blanda saman tveimur ólíkum ástríðum, kynlífstækjum og gróðurrækt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×