Tónlist

Tómas Lemarquis túlkar lag OMAM af stakri snilld

Stefán Árni Pálsson skrifar
Tómas er frábær leikari.
Tómas er frábær leikari. vísir
Íslenska hljómsveitin Of Monsters and Men hefur gefið út nýtt myndband við lagið Slow Life sem er á plötu sveitarinnar, Beneath the Skin, sem kom út fyrir ári hér á landi.

Um er að ræða textamyndband sem hafa komið út við nánast öll lögin á plötunni og að þessu sinni er það leikarinn Tómas Lemarquis sem túlkar lagið en hann lék meðal annars í  X-Men: Apocalypse sem var frumsýnd á þessu ári. Það er framleiðslufyrirtækið Tjarnargatan sem gerði myndbandið í samvinnu með sveitinni.

Tómas fer með algjöran leiksigur og túlkar lagið af stakri snilld. Hér að neðan má sjá myndbandið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×