Lífið

Tom Ford leikstýrir Clooney

Adda Soffia Ingvarsdottir skrifar
Tom Ford
Tom Ford Vísir/getty
Breski tískuhönnuðurinn Tom Ford, mun að öllum líkindum setjast aftur í leikstjórastólinn á næstunni. Að þessu sinni mun hann leikstýra engum öðrum en George Clooney. Ford, sem leikstýrði síðast kvikmyndinni A Single Man árið 2009 með Colin Firth í aðalhlutverki, er orðaður við leikstjórn í myndinni Nocturnal Animals.

Handritið verður byggt á bókinni Tony and Susan eftir Austin Wright, en það var Tom Ford sem skrifaði handritið að þessum póstmóderníska trylli. Bókin Tony and Susan kom fyrst út árið 1993 og fjallar um konu að nafni Susan, sem fær einn góðan veðurdag óvænta sendingu frá fyrrverandi eiginmanni sínum, Edward, sem hún hefur ekki talað við í tuttugu ár. Í sendingunni er handrit að bók sem hann hefur skrifað og biður hann hana um að lesa það yfir og segja honum álit sitt á því.

Bókin skiptist þá í tvo hluta; söguna sem Susan les, Nocturnal Animals, sem fjallar um mann sem fer í frí með fjölskyldunni sinni, en fríið snýst upp í andhverfu sína og endar með skelfilegum hætti.Og svo sjálfa bókina þar sem við fylgjumst með Susan lesa handritið og við það rifjast upp fyrir henni fyrra hjónaband hennar og dimm leyndarmál um sjálfa sig.

Gerð myndarinnar er aðeins á frumstigi, en hún hefur nú þegar fengið mikla athygli. Ford er þekktastur fyrir að hafa bjargað tískurisunum Gucci og Yves Saint Laurent og komið þeim á þann stall sem þeir eru í dag, áður en hann stofnaði sitt eigið tískumerki.

Ást hans á kvikmyndum ýtti honum á endanum út í kvikmyndagerð. Hann, eins og áður sagði, skrifaði, leikstýrði og framleiddi kvikmyndina A Single Man. Myndin verður framleidd af fyrirtæki Fords, Smokehouse Pictures, ásamt meðeiganda hans Grant Heslov.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×