Leikjavísir

Tölvuleikur sem kennir ungum börnum forritun

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Vignir Örn Guðmundsson segir markmiðið vera að búa til leikjaseríu þar sem börnin læra að tjá forritun í gegnum alls kyns tómstundaleiki.
Vignir Örn Guðmundsson segir markmiðið vera að búa til leikjaseríu þar sem börnin læra að tjá forritun í gegnum alls kyns tómstundaleiki. Mynd / Valli
„Markmiðið með leiknum er að efla og örva rökfræðilega hugsun sem börn á fyrstu árum grunnskólans þurfa til að fá betri skilning á gildum forritunar,“ segir Vignir Örn Guðmundsson, meistaranemi í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík og framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækisins Radiant Games.

Um er að ræða fótboltaleik fyrir spjaldtölvur þar sem forritunarmáli er varpað í tungumál sem ung börn skilja. Vignir veit ekki til þess að slíkur leikur hafi verið hannaður fyrir svo ung börn.

„Það eru til leikir fyrir eldri krakka þar sem forritunarmál er notað. Við notum tungumál sem börnin eiga gott með að tjá sig á. Í þessu tilfelli tökum við fótboltann og brjótum upp í smærri verkefni sem barnið leysir, eins og forritun snýst um. Svona viljum við örva skipulagða hugsun sem barnið getur tekið með sér í sitt daglega líf.“

Markmið Radiant Games er að búa til leikjaseríu sem eykur forritunarkunnáttu barna. Fótboltaleikurinn er aðeins fyrsti leikurinn.

„Ástæðan fyrir því að við byrjuðum á fótbolta er að það er stærsta íþróttin hjá bæði stelpum og strákum. En þetta er bara eitt dæmi um hvernig hægt er að tjá forritun. Til dæmis væri hægt að hanna dansleik þar sem barnið þarf að búa til dansrútínu á móti dansfélaga.“

Fyrirtækið ætlar einnig að búa til stoðkerfi fyrir kennara og aðstandendur. „Þannig er hægt að fylgjast með framvindu barnsins í leiknum. Ef barnið skilur ekki eitthvert verkefni þá er hægt að aðstoða það og hjálpa því að komast yfir hindrunina.“

Vignir Örn segir mikilvægt að kenna börnum undirstöðuatriði forritunar.

„Upplýsingatæknikennslan í grunnskóla felst meira í að nota hugbúnað en að kenna gildin til að skapa eigin hugbúnað. Það er skortur á forriturum á vinnumarkaði og því mikilvægt að efla grunninn fyrir fagið.“

Leikurinn CodeBall
Fótboltaleikurinn CodeBall

Í leiknum þarf barnið að skilgreina hvernig persónur í leiknum eiga að hreyfa sig. Í stað þess að skrifa flókinn kóða eru skipanir gefnar með spurningum og verkfærum.

Verkfærin fær barnið úr verkfærakistu neðst á skjánum og býr þannig til sitt eigið forrit.

Svo notar barnið einfaldar spurningar til að búa til aðgerð. Til dæmis: „Er ég með boltann? Og ef ég er með boltann þá ætla ég að skjóta á markið.“ 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×