Leikjavísir

Tölvuleikjafyrirtæki á vegum Íslendinga tryggir fjárfestingar fyrir nýjan leik

Samúel Karl Ólason skrifar
Seed er fjölspilunarleikur þar sem spilarar byggja upp bæi og eiga í samskiptum við aðra spilara.
Seed er fjölspilunarleikur þar sem spilarar byggja upp bæi og eiga í samskiptum við aðra spilara. Vísir/Klang
Tölvuleikjafyrirtækið Klang, sem stofnað var af Íslendingum og starfrækt er í Berlin, hefur tryggt sér fimm milljónir dala fjárfestingu til framleiðslu fjölspilunarleiksins Seed. Fjárfestingin verður notuð til að stækka fyrirtækið og betrumbæta framleiðslu leiksins.

Fjárfestarnir eru Makers Fund, Firstminute Capital, Neoteny, Mosaic Ventures og Novator.

„Við erum mjög stoltir af því að fá stuðning þessara aðila sem trúa á okkur og þann draum sem hófst fyrir rúmum áratugi,“ sagði Guðmundur Hallgrímsson, annar stofnandi Klang, við Gamesindustry.



Hann bætti því við að hann teldi Seed tilheyra næstu kynslóð tölvuleikja.

Einn af eigendum Makers Fund sagði Seed vera einstakan leik í þróun og að eitthvað besta teymi geirans væri að framleiða hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×