Sport

Tólfta árið sem Þormóður er bestur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Þormóður Árni Jónsson á ÓL í Ríó.
Þormóður Árni Jónsson á ÓL í Ríó. vísir/anton
Júdósambands Íslands valdi júdófólk ársins og verðlaunaði það á lokahófi sambandsins um helgina.

Þormóður Árni Jónsson valinn Júdómaður ársins og Hjördís Ólafsdóttir júdókona ársins en þau keppa bæði fyrir JR.

Þormóður var að fá þessa nafnbót í tólfta sinn á ferlinum en hann keppt í ár á sínum þriðji Ólympíuleikum þegar hann vann sér þátttökurétt á ÓL í Ríó.

Þormóður varð í fyrsta sæti á Norðurlandamótinu á árinu en þá var hann í fimmta sæti á móti í Casablanca og níunda sæti á mjög sterku móti í Prag.

Hér heima bar Þormóður höfuð og herðar yfir keppinauta sína og varð bæði Íslandsmeistari í þungavigt sem og í opnum flokki. Þormóður er eins og er í 83. sæti á heimslista IJF.

Hjördís Ólafsdóttir sem keppir í -70 kílóa flokki varð Íslandsmeistari í sínum flokki og einnig í opnum flokki. Hún sigraði bæði á Haustmóti og Vormóti JSÍ og varð Íslandsmeistari með félagi sínu í sveitakeppni JSÍ.

Júdósambandið valdi þau Ægi Baldvinsson UMFN og Draupniskonuna Bereniku Bernard sem efnilegasta júdófólk ársins en þau hafa verið framarlega á flestum mótum innanlands á árinu.

Selfyssingurinn Bergur Pálsson hlaut sextánda Gullmerki Júdósambandsins fyrir störf í þágu júdó í áratugi.

Þormóður Árni Jónsson og Hjördís Ólafsdóttir með verðlaun sín.Mynd/Júdósamband Íslands



Fleiri fréttir

Sjá meira


×