Innlent

Tólf kynferðisbrot á borð lögreglu í síðasta mánuði

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Fleiri brot tilkynnt lögreglu á fyrstu tíu mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra.
Fleiri brot tilkynnt lögreglu á fyrstu tíu mánuðum ársins en á sama tímabili í fyrra. vísir/getty images
Lögreglunni var tilkynnt um 12 kynferðisbrotamál í október. Í meðal mánuði tólf mánuðina á undan voru brotin um fimmtán í mánuði. Flest brotin voru tilkynnt í maí, þegar 24 brot voru tilkynnt lögreglu, en næst flest í júlí, þegar 23 brot voru tilkynnt. 



Í afbrotatölfræði lögreglunnar sem birt var í dag kemur fram að kynferðisbrotum hefur fækkað um tíu prósent samanborið við sama tímabil síðustu þriggja ára. 

Sérstaklega mörg kynferðisbrot voru tilkynnt árið 2013, eða 234 á fyrstu tíu mánuðum ársins, sem dregur upp tölfræðina, að því er fram kemur í gögnunum. 



Árið 2014 voru 146 kynferðisbrot tilkynnt á þessu tímabili en 169 hafa verið tilkynnt í ár. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×