Innlent

Tólf fylgdarlaus börn á flótta til Íslands á árinu

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Bragi Guðbrandsson
Bragi Guðbrandsson mynd/úr einkasafni
Tólf fylgdarlausir flóttamenn á barnsaldri hafa komið hingað til lands það sem af er ári. Forstjóri Barnaverndarstofu segir misbrest í málefnum þeirra.

Þrjú börn hafa þegar fengið vernd, einu var synjað á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar en mál átta eru óafgreidd. Tveir til viðbótar báru því við að vera á barnsaldri við komuna til landsins en reyndust vera fullorðnir. Í vafatilfellum er gerð aldursgreining með því að skoða tennur viðkomandi.

„Þegar barn kemur fylgdarlaust til landsins og óskar eftir hæli ber Útlendingastofnun að tilkynna það til barnaverndar í því umdæmi þar sem barnið gefur sig fram,“ segir Bragi Guðbrandsson, forstjóri Barnaverndarstofu.

„Undir eðlilegum kringumstæðum færi barnið á móttökustöð en reyndin er að þau lenda yfirleitt strax hjá barnavernd,“ segir Bragi.

Flest börnin gefa sig fram í Leifsstöð en dæmi eru um flóttabörn sem komu með Norrænu. Þá hafa börn gefið sig fram í Reykjavík.

Börnin sem nú eru á landinu eru frá Albaníu, Alsír, Írak, Marokkó, Pakistan, Sómalíu og Sýrlandi.

„Við höfum auglýst í tvígang á árinu eftir fósturfjölskyldum til að hýsa börn sem koma hingað einsömul og stefnum á að halda námskeið fyrir áhugasamar fjölskyldur,“ segir Bragi.

Að sögn Braga þarf að sníða úrræði að hverjum einstaklingi. Þar tvinnist saman búseta, tómstundir og menntun. Stærstur tími barnaverndarnefndanna fer í að finna húsnæði fyrir börnin.

„Það hefur ekki verið mikið skipulag á þessari þjónustu heilt yfir landið og misbrestur á þessu,“ segir Bragi. Því hafi Barnaverndarstofa beitt sér fyrir því að nýju útlendingalögin, sem taka gildi um áramótin, tryggi réttindagæslu þessa hóps. „Frá og með áramótum mun Barnaverndarstofa fara með yfirumsjón þess að hælisleitandi börn hljóti viðeigandi stuðning.“

Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.


Tengdar fréttir

Gistiskýlið ekki mannsæmandi í lengri tíma

Útlendingastofnun vinnur nú að því að opna gistiskýli fyrir hælisleitendur á Krókhálsi en metfjöldi hælisumsókna á haustmánuðum hefur haft í för með sér að húsnæðisúrræði á vegum stofnunarinnar hafa verið fullnýtt undanfarnar vikur. Öryggisgæsla verður í húsnæðinu allan sólarhringinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×