Innlent

Tólf ára lególistamaður í viðtali hjá Discovery

Bjarki Ármannsson skrifar
Brynjar Karl vinnur að sex metra langri Titanic-eftirlíkingu úr legókubbum.
Brynjar Karl vinnur að sex metra langri Titanic-eftirlíkingu úr legókubbum. Mynd/Af síðu Brynjars Karls
Brynjar Karl Birgisson, tólf ára Mosfellingur sem vinnur að sex metra langri Titanic-eftirlíkingu úr legókubbum, fékk að segja frá verkefninu í viðtali við bandarísku sjónvarpsstöðina Discovery Science. Brynjar Karl, sem er einhverfur, fer brátt að ljúka við skipið sem hann hefur nú unnið að í um níu mánuði.

„Við áætlum að þetta verði búið í byrjun næsta mánaðar,“ segir Bjarney S. Lúðvíksdóttir, móðir Brynjars. Greint var frá draumi Brynjars um að smíða slíkt skip í fyrra en hann sendi meðal annars skemmtilegt myndband á Legoland í Danmörku þar sem hann biður um að fá að koma í heimsókn. Söfnun fór af stað hér á landi stuttu eftir að Brynjar rataði í fréttirnar og safnaðist nóg fé til að kaupa kubba handa honum.

„Ótrúlegt nokk var bara mjög mikill meðbyr með þessu verkefni,“ segir Bjarney. „Þetta hefur meðal annars þjálfað í honum þolinmæðina og að taka á móti fólki. Það hefur hjálpað honum mjög mikið.“

Til stendur að færa skipið í Hagkaup í Smáralind í næstu viku þar sem fólk getur fylgst með Brynjari vinna að skipinu og spurt hann út í það.

Eins og sést er engu til sparað við gerð skipsins.Mynd/Af síðu Brynjars Karls
Sjá einnig: „Mig langaði alltaf að einhver draumur myndi rætast“

Einhvern veginn hafa fregnir af verkefni Brynjars borist til umsjónarmanna Discovery, sem fengu að taka símaviðtal við Brynjar um skipið. Bjarney segir að til standi að sýna innslag um drenginn í vinsælum þætti stöðvarinnar eftir rúmlega viku.

„Þetta var svolítið skemmtilegt,“ segir Bjarney. „Hann þurfti að tala ensku og það er alveg ótrúlegt hvað hann nær að klóra sig fram úr því. Það er internetið.“

Ljóst er að margir hafa gaman af því að fylgjast með skipasmíð Brynjars, en verður ráðist í annað svona verkefni þegar skipið er fullklárað?

„Nei veistu, það held ég ekki,“ segir Bjarney og hlær. „Það er komið alveg gott í bili. Það er reyndar eitt verkefni sem okkur langar að vinna, en það er vinnustofa fyrir einhverf börn. Við ætlum að bjóða þeim að koma og gera eigin legó-listaverk.“


Tengdar fréttir

Ellefu ára drengur skorar á LEGOLAND

"Þetta er algjörlega hans hugmynd, í aðeins einfaldari útgáfu,“ segir Bjarney Lúðvíksdóttir, móðir Brynjars Karls um myndband sem að þau mæðginin birtu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×