Innlent

Tólf ára íslenskur drengur lést af óútskýrðum ástæðum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Aron Andri Hall Arnarsson.
Aron Andri Hall Arnarsson.
Tólf ára íslenskur drengur lét lífið á óútskýrðan hátt fyrir tveimur vikum í svefni daginn eftir að fjölskyldan sneri til landsins eftir mánaðarferðalag til Flórída í Bandaríkjunum. Stundin greinir frá en þar kemur fram að engan hafi grunað að drengurinn, Aron Andri Hall Arnarsson, væri með undirliggjandi mein. 

Aron fékk flogakast fyrir um ári en þó hefur ekki verið sýnt fram á að það tengist skyndilegu andláti hans. Föðurbróðir drengsins segir við Stundina að niðurstaðna sé að vænta frá sérfræðingum í Þýskalandi í september. Fjölskyldan eigi þó von á að dánarorsökin verði titluð sem óútskýrð.

Aron Andri var nemandi í Ingunnarskóla og fékk meðal annars hvatningarverðlaun skólans fyrir tveimur árum fyrir samviskusemi, kurteisi, jákvæðni ogog fyrir að hafa verið framúrskarandi nemandi, hugmyndaríkur og listrænn.

Í minningargrein sem birtist í Morgunblaðinu á dögunum þakka þau fyrir allar stundirnar með syni sínum sem hafi haft orð á því í ferðalaginu til Flórída og á leiðinni heim hve þakklátur hann væri fyrir ferðina.

Aron Andri á góðri stund vestan hafs.
Að neðan má sjá brot úr minningargrein sem foreldrar Arons Andra rituðu í Morgunblaðið. 

„Bros þitt var einstakt, enda kölluðum við þig oft „broskarlinn okkar“. Þú fékkst okkur til að brosa bæði þegar við vorum eitthvað súr og líka utan þess og þá léstu okkur bara brosa, komst með fallega andlitið þitt fyrir framan andlitin á okkur og settir upp þitt einstaka bros og hættir ekki fyrr en við brostum á móti, þvílíkur eiginleiki! Þú sagðir mörgum sinnum á dag „mér þykir vænt um þig“ og „mér þykir vænt um ykkur“ við okkur hin í fjölskyldunni, væntumþykja þín var og er ómetanleg og það er eitt af mörgu sem við viljum læra af þínu lífsskeiði hér á jörðinni. Þú kenndir okkur hvað ást er dýrmæt, hvað bros gerir mikla galdra og hvað einlægni og hreinskilni er mikilvæg. Við ætlum að taka þetta með okkur áfram lífsveginn og við vitum að þú fyrirgefur ef okkur tekst ekki nógu vel upp en við gerum okkar besta, þú hafðir mikil áhrif,“ segir í minningargreininni.

Ættingjar og vinir hafa blásið til söfnunar fyrir fjölskylduna til að lágmarka fjárhagsáhyggjur á þessum erfiðu tímum. Þeir sem vilja leggja lið geta lagt inn á reikninginn hér að neðan.

528-14-404005 kt. 190771-3859




Fleiri fréttir

Sjá meira


×