Innlent

Töldu hugsanlegt að börn hefðu orðið undir snjó sem féll af knattspyrnuhöll

Birgir Olgeirsson skrifar
Björgunarsveitarfólk leitaði af sér grun í um klukkustund.
Björgunarsveitarfólk leitaði af sér grun í um klukkustund. Vísir/Vilhelm
Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar á Austurlandi voru kallaðar út laust fyrir klukkan 14 að Fjarðarhöllinni í Reyðarfirði í dag. Mikill snjór hafði runnið af þaki hallarinnar og var talið hugsanlegt að börn, sem þar voru að leik, hefðu orðið undir snjónum.

Lögreglan veitti björgunarsveitum leyfi til forgangsaksturs og voru þær fljótar staðinn því þær voru við snjóflóðaleitaræfingar í Oddskarði með snjóflóðaleitahunda, leitarstangir og skóflur. Vel gekk að leita í snjónum umhverfis húsið og klukkustund eftir að útkallið barst var björgunarsveitafólk búið að fínkemba svæðið og leita af sér allan grun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×