Bíó og sjónvarp

Tökur hefjast í janúar

Julia Roberts leikur í The Secret in Their Eyes.
Julia Roberts leikur í The Secret in Their Eyes.
Tökur á endurgerðinni The Secret in Their Eyes hefjast í janúar í Los Angeles. Með aðalhlutverk fara Chiwetel Ejiofor, Julia Roberts og Nicole Kidman.

Leikstjóri verður Billy Ray sem er þekktastur fyrir handritin að The Hunger Games og Captain Phillips.

Ejiofor leikur lögfræðing sem snýr aftur til Los Angeles eftir að ný sönnunargögn í 13 ára gömlu máli, þar sem barn var myrt, koma upp.

Um er að ræða endurgerð á argentínsku myndinni El secreto de sus ojos sem fékk Óskarsverðlaun árið 2009.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×