Bíó og sjónvarp

Tökur á Fast 8 munu fara fram fyrir norðan

Bjarki Ármannsson skrifar
Vin Diesel er ef til vill á leið í Mývatnssveitina.
Vin Diesel er ef til vill á leið í Mývatnssveitina. Vísir
Tökur á kvikmyndinni Fast 8, áttundu myndinni í bandaríska myndaflokknum Fast and the Furious, munu að einhverju leyti fara fram á Norðurlandi auk Akraness. Búið er að bóka nærri allt laust gistipláss í Mývatnssveit í mars undir tökulið kvikmyndarinnar.

Þetta herma heimildir Nútímans annars vegar og 641.is hins vegar. Vísir greindi frá því í dag að tökur á myndinni færu að hluta til fram á Akranesi í apríl og segir bæjarstjóri Akraness að þær muni hafa áhrif á verslun og þjónustu í bænum.

Fast and the Furious myndaflokkurinn hefur notið mikilla vinsælda en hann snýst fyrst og fremst um götukappakstur í hinum ýmsu borgum. Leikarinn Vin Diesel hefur verið aðal maðurinn við gerð myndanna, sem leikari og framleiðandi, en óvíst er hvort aðalleikarar myndarinnar komi hingað til lands. Síðasta myndin í flokknum, sem hét Furious 7, er sjötta tekjuhæsta mynd allra tíma en hún halaði inn 1.515 milljónum dollara, jafnvirði 202 milljarða íslenskra króna, í miðasölu.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×