Bíó og sjónvarp

Tökulið Ég man þig mætt á Hesteyri: „Bless heimur“

Birgir Olgeirsson skrifar
Tökulið kvikmyndarinnar Ég man þig að koma búnaði í land á Hesteyri.
Tökulið kvikmyndarinnar Ég man þig að koma búnaði í land á Hesteyri. Vísir/Hafþór Gunnarsson
Tökulið kvikmyndarinnar Ég man þig er mætt til Hesteyrar í Jökulfjörðum þar sem tökur munu standa yfir fram á föstudag. Var tökuliðið ferjað yfir á Hesteyri frá Ísafirði af Sjóferðum Hafsteins og Kiddýjar í gærmorgun og hófust einhverjar tökur þegar í stað á meðan siglingunni stóð.

Handrit myndarinnar vann leikstjóri hennar Óskar Þór Axelsson ásamt Ottó Geir Borg upp úr samnefndri metsölubók Yrsu Sigurðardóttur sem kom út árið 2010.

Það hefur reynst mikil þolraun að koma öllum búnaðinum í land því ekki er hægt að styðjast við vélknúin farartæki á Hesteyri.Vísir/Hafþór Gunnarsson
Ég man þig segir frá ungu fólki, sem Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Ágústa Eva Erlendsdóttir leika, sem fer til Hesteyrar í Jökulfjörðum um miðjan vetur til að gera upp hús en fer að gruna að þau séu ekki einu gestirnir í þessu eyðiþorpi. Á sama tíma dregst ungur læknir á Ísafirði inn í rannsókn á sjálfsmorði eldri konu.

Frá smábátabryggunni á Ísafirði en þaðan var tökuteymið flutt yfir á Hesteyri.Vísir/Hafþór Gunnarsson
Ísfirski fréttamiðillinn Bæjarins besta sagði frá því í gær að tökuteymið flutti rotþró til Hesteyrar sem mun leika stórt hlutverk í myndinni. Þá kom einnig fram að þær senur sem gerast á Ísafirði verði teknar upp næsta vor og er bæði búið að velja hús og götur í bæjarfélaginu þar sem tökur munu fara fram.

Vera tökuliðsins á Hesteyri á þessum árstíma mun ekki reynast neinn dans á rósum. Þorpið fór í eyði rétt eftir miðja síðustu öld en þar standa níu hús sem notuð eru sem sumarhús. Ekki er gert ráð fyrir dvöl í þeim til lengri tíma yfir vetrarmánuðina og þurfti til að mynda að fara þangað með nokkurra daga fyrirvara áður en tökuteymið mætir á staðinn til að kynda upp húsin sem á að dvelja í. Er rafmagn í afar takmörkuðu magni og lítið sem ekkert símasamband.

Ágústa Eva kvaddi til að mynda vini sína á Facebook á sunnudag þar sem hún sagðist eiga eftir að eftir að hverfa af yfirborði jarðar í rúma viku á meðan tökum á Hesteyri stendur.

Bless heimur! Ég er að hverfa af yfirborði jarðar í rúma viku og bið ykkur vel að lifa og njóta á meðan. Mig langaði að...

Posted by Erlendsdóttir Ágústa Eva on Sunday, November 8, 2015

Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×