Tónlist

Tóku órafmagnaða útgáfu af Drunk in Love

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Ed Sheeran og Beyoncé á tónleikum í New York um helgina.
Ed Sheeran og Beyoncé á tónleikum í New York um helgina. vísir/getty
Beyoncé bauð óvæntum gesti upp á svið með sér í gær þegar hún tók lagið Drunk in Love. Breski söngvarinn Ed Sheeran mætti þá með kassagítarinn og tóku hann og Beyoncé dúett þar sem þau fluttu órafmagnaða útgáfu af laginu.

Sheeran og Beyoncé komu bæði fram á tónlistarhátíðinni Global Citizen Festival í Central Park í New York um helgina.

Þeim var vel fagnað enda virkilega flottur flutningur á laginu sem er eitt það vinsælasta sem Beyoncé hefur gefið út. Flutninginn má sjá í myndbandinu hér að neðan.


Tengdar fréttir

Beyonce og Jay-Z í Bláa lóninu

Bandaríska ofurparið Beyoncé og Jay-Z eru eins og fram er komið á landinu. Ætla þau að halda upp á 45 ára afmæli rapparans sem hann fagnar þann 4. desember.

„Látið þau í friði!“

Fjöldi fólks biðlar til fjölmiðla og ljósmyndara að láta hjónin Beyoncé og Jay Z í friði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×