Tókst að klóna mennskan fósturvísi Jóhannes Stefánsson skrifar 16. maí 2013 10:45 Læknavísindunum fer stöðugt fram, en ýmis siðferðisleg vandamál vekja spurningar Mynd/ Getty
Bandarískum vísindamönnum hefur tekist að búa til mennska fósturvísa með klónun. Klónuðu fósturvísarnir voru notaðir til framleiðslu stofnfruma, en þær má nota til að búa til hjartavef, bein, heilavef eða hvaða frumu mannslíkamans sem er. Klónunin átti sér stað með sömu aðferðum og notaðar voru til að klóna kindina Dolly samkvæmt rannsókninni.Mikil tækifæri en einnig siðferðisleg álitamál Vísindamennirnir segja þó að aðferðin sé ekki eins álitleg til þess að útvega stofnfrumur og aðrar þekktari aðferðir, bæði vegna kostnaðar og af siðferðislegum ástæðum. Andstæðingar segja tilraunir á mennskum fósturvísum siðferðislega rangar og hafa farið fram á að þær verði bannaðar. Stofnfrumurannsóknir fela í sér mikla möguleika fyrir læknavísindin, enda verður þegar fram líða stundir kannski hægt að laga hjarta sem hefur skemmst við hjartaáfall eða mænu sem hefur farið í sundur með nýjum vef úr stofnfrumum. Þegar hafa verið gerðar prufanir með stofnfrumur úr gjafafósturvísum til að veita fólki sjón að nýju, en vandinn er sá að líkami stofnfrumuþegans á það til að hafna hinum aðfluttu frumum. Þetta er ekki vandamál þegar klónun er beitt. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem fréttir berast af klónun mennskra fósturvísa, en hinn suður-kóreski vísindamaður Hwang Woo-suk hélt því fram að honum hefði tekist klónunin. Það kom svo á daginn að hann hafði falsað niðurstöður sínar. Ítarlega er fjallað um málið á vef BBC.
Mest lesið Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent „Börn eiga aldrei að borga fyrir gjörðir foreldra sinna“ Innlent „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Innlent Magga Friðriks leitar til almennings eftir stuðningi Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Marius látinn laus Erlent Fleiri fréttir Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Hezbollah harðneitar samkomulagi Ísraels og Líbanons Höfuðpaur í Foxtrot hafi skipulagt sprengju- og skotárásir í Noregi Pelley látinn fjúka og óvissa uppi um framtíð 60 mínútna Sjá meira