Tónlist

Tók upp tónlistarmyndband hér á landi

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Denai Moore á tónleikum með SBTRKT
Denai Moore á tónleikum með SBTRKT vísir/getty
Breska söngkonan Denai Moore kom til landsins í janúar síðastliðinn, til að taka upp myndband við lagið “Blame”. Íslenska framleiðslufyrirtækið Snark films sá um framleiðslu á myndbandinu með breska framleiðslufyrirtækinu Pulse films.

Denai Moore, er aðeins 19 ára gömul og hefur vakið mikla athygli á stuttum tíma fyrir draumkennda og fallega tónlist sína. Hefur Denai á skömmum tíma náð að marka stór spor og hún unnið með mörgum virtum tónlistarmönnum. Þar ber helst að nefna SBTRKT en hann lék á hinni nýafstöðnu Sónar Reykjavík hátíð. Platan hennar “Elsewhere” er gefin út hjá plötufyrirtækinu Because.

Tökur á myndbandinu stóðu yfir í tvo daga á Bláfjallaafleggjara og var hópur íslensks kvikmyndagerðafólks sem kom að gerð myndbandsins undir leikstjórn franska leikstjórans Simon Cahn.

Íslenski leikarinn Walter Geir Grímsson leikur aðalhlutverkið í myndbandinu sem má sjá hér að neðan.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×