Erlent

Tók rekstrarstjórann af lífi

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/AP
Rekstrarstjóri Lindt kaffihússins í Sydney lét ekki lífið við að reyna að afvopna gíslatökumanninn, sem hélt fjölda manns á Lindt kaffihúsini í Sydney, eins og áður hefur komið fram í fjölmiðlum. Þess í stað var Tori Johnson látinn krjúpa á hné og skotinn í höfuðið. Við það réðst lögreglan til atlögu og í árásinni létust gíslatökumaðurinn og einn gíslanna.

Þetta kom fram á blaðamannafyndi í Sydney seint í gærkvöldi, þar sem ýmsar niðurstöður rannsóknarinnar voru kynntar. Næsta stig rannsóknarinnar er að gíslarnir sjálfir beri vitni, en ekki liggur fyrir hvenær það verður, samkvæmt BBC.

Þá staðfesti Michael Barnes, sem sér um rannsóknina, það sem áður hefur komið fram í fjölmiðlum um að gíslinn Katrina Dawson hafi látið lífið eftir að hafa orðið fyrir skoti lögreglumanns. Nánar tiltekið hafi kúlan lent á hörðu yfirborið og endurkastast í Dawson.

Sjá einnig: Varð fyrir skoti lögreglu

Yfirvöld í Ástralíu rannsaka nú dauðsföllin þrjú í gíslatökunni Lindt kaffihúsinu í Sydney í desember. Markmið rannsóknarinnar er að komast að því hvernig gíslarnir létust, sem og gíslatökumaðurinn og hvort að hægt hefði verið að komast hjá þeim dauðsföllum.

Þar að auki verður rannsakað hvort og hvernig lögreglan hefði getað brugðist betur við ástandinu.

Man Haran Moni var flóttamaður frá Íran, sem hafði verið ákærður fyrir ofbeldisglæpi og sagðist vera klerkur.
Sagðist vera á vegum ISIS

Gíslatökumaðurinn, Man Haron Monis, gekk inn á kaffihúsið og pantaði sér súkkulaðiköku og te. Þá bað hann um að fá að tala við rekstrarstjórann, Tori Johnson. Hann tilkynnti Johnson að hann væri með sprengju og að hann ætti að læsa kaffihúsinu.

Seinna um morguninn var Johnson skipað að hringja í neyðarlínuna og segja að vígamenn Íslamska ríkisins væru að ráðast á Ástralíu og að Monis hefði komið fyrir sprengjum um miðborg Sydney. Monis hafði engin tengsl við ISIS

Nokkrum gíslum tókst að flýja kaffihúsið yfir daginn, en lögreglan réðst til atlögu eftir 16 tíma umsátursástand. Þá sá leyniskytta lögreglunnar að Monis skaut Johnson í hnakkann eftir að hafa neytt hann til að krjúpa á hné.

Áður hefur því verið haldið fram að Johnson hafi orðið fyrir skoti þegar hann reyndi að ná byssunni af Monis. Það kemur hins vegar hvergi fram í skýrslunni.

Skaut þrisvar sinnum að lögreglu

Meðal þess sem rannsóknin snýr að, samkvæmt AP fréttaveitunni, er hvort að leyniskyttur hefðu átt að skjóta Monis á færi.

Monis sjálfur var skotinn 13 sinnum af lögreglu og lést hann samstundis. Hann skaut sjálfur fimm skotum yfir daginn. Einu í átt að gíslum sem flúðu kaffihúsið, síðan þegar hann skaut Tori Johnson og hann skaut þremur skotum að lögreglu. Alls fundust 21 skot í vösum hans.

Samkvæmt Sky News varpaði lögreglan ellefu flasssprengjum inn í kaffihúsið og skutu þeir alls 22 skotum að Monis.


Tengdar fréttir

Varð fyrir skoti lögreglu

Katrina Dawson, sem lést er lögreglan gerði árás á kaffihús í Sidney í desember varð fyrir skoti lögreglumanns.

Abbot segir gíslatökumanninn brjálæðing

Tony Abbot boðar rannsókn sem miðar að því að upplýsa hvernig í ósköpunum gat staðið á því að gíslatökumaðurinn í Sydney var ekki undir eftirliti.

Greip í byssu Monis

Umsátri áströlsku lögreglunnar um kaffihús í Sydney á mánudag lauk fljótlega eftir að eigandi kaffihússins sá sér færi og greip um byssu gíslatökumannsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×