Lífið

Tók nýja lagið óaðfinnanlega: Er Adele versti lygari sögunnar?

Stefán Árni Pálsson skrifar
Adele tókst ekki að ljúga að Fallon
Adele tókst ekki að ljúga að Fallon vísir

Söngkonan Adele var gestur hjá Jimmy Fallon í spjallþættinum The Tonight Show í gær og fóru þau í leik sem gekk út á það að ljúga að hvort öðru.

Leikurinn fór þannig fram að þau völdu sér kassa sem innihélt einhvern hlut. Markmið þeirra var síðan að segja hvort öðru hvað væri inn í kassanum, en þau máttu bæði ljúga því eða segja sannleikann.

Andstæðingurinn átti síðan að giska um hvort væri að ræða. Hér að neðan má sjá þennan frábæra leik en Adele sögn einnig lagið Water Under the Bridge undir lok þáttarins.

Adele: Water Under the Bridge





Fleiri fréttir

Sjá meira


×