Tók eina vakt sem flugfreyja Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 13. maí 2013 12:49 Branson og Fernandes eru mestu mátar þó Fernandes hafi ekki verið par hrifinn af frammistöðunni. Mynd/AP
Auðkýfingurinn Richard Branson tók eina vakt sem flugfreyja í flugi AirAsia frá Perth til Malasíu í gær. Forsaga málsins er sú að árið 2010 veðjaði Branson, sem er þekktastur fyrir að stofna fyrirtækið Virgin Group (flugfélagið Virgin Airlines er rekið undir merkjum þess), við Tony Fernandes eiganda AirAsia um úrslit í Formúlu 1-kappakstrinum. Báðir eiga þeir lið í Formúlunni og hljóðaði veðmálið svo að eigandi þess liðs sem næði lakari árangri í keppninni þyrfti að klæða sig í flugbreyjubúning og taka eina vakt hjá flugfélagi hins. Lið Fernandes endaði tveimur sætum ofar en lið Branson, og í gær lauk veðmálinu þegar Branson mætti í flugið með nýrakaða leggina, setti á sig varalit og smellti sér í rauða dressið sem sjá má á myndunum. Branson hellti drykkjum yfir Fernandes í fluginu og var rekinn eftir vaktina. Fernandes sagði hann vera ömurlegan flugþjón og sagðist hafa viljað drepa Branson þegar hann hellti drykkjunum yfir hann. Var haft eftir einum farþeganna að hann hefði árum saman litið upp til Richards Branson, og nú hefði hann litið upp undir pilsið hans. Uppátækið var liður í fjáröflun fyrir Starlight-samtökin, en þau styðja við langveik börn í Ástralíu. Söfnuðust um 300 þúsund dala í fjáröfluninni, um 36 milljónir íslenskra króna.Branson hellti drykkjum yfir Fernandes.Mynd/Virgin.comRakaðir leggir auðkýfingsins vöktu mikla athygli.Mynd/Virgin.com
Mest lesið „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Innlent Aðalsteinn hleypur í skarðið Innlent Vaxtaplanið sé tímaskekkja Innlent Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali Innlent Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Innlent Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Erlent Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Innlent Fleiri fréttir Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Nýr leki á rússneskum hluta geimstöðvarinnar Danska lögreglan komin með nóg af drukknum börnum Hafði leigutekjur af húsnæði krúnunnar Breyttu fósturvísum af meiri nákvæmni en áður „Menningarleg hnignun“: Bandaríkjastjórn skýtur á Breta vegna Nowak Mette-Marit á biðlista fyrir lungnaígræðslu Segir Kúbu næsta á eftir Íran Repúblikanar unnu kjördæmastríðið „Ekki óttast leiðina út úr þessu stríði“ Sjá meira