Viðskipti innlent

Tók aldrei mark á svartsýnisröddum

Þorbjörn Þórðarson skrifar
Wow Air skilaði hagnaði í fyrsta sinn árið 2015 og nam hagnaðurinn 1,5 milljarði króna fyrir skatta. Eftir að félagið hóf áætlunarflug til Bandaríkjanna hefur farþegum frá Bandaríkjunum til Íslands fjölgað um sextíu prósent.

Það höfðu ekki margir trú á Skúla Mogensen þegar hann stofnaði Wow Air enda er flugrekstur einn áhættusamasti bransi í heiminum. Eins og með öll frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtæki þá gekk fyrirtækið í gegnum sársáukafulla byrjun. Það hefur nú breyst.

Tekjur Wow í fyrra námu um 17 milljörðum króna sem er 58 prósent aukning miðað við árið á undan. Fyrirtækið tapaði 794 milljónum 2012. Það var aftur tap 2013 upp á 332 milljónir og 2014 tapaði félagið rúmlega hálfum milljarði króna. Á árinu 2015 var svo hagnaður upp á einn og hálfan milljarð króna eða 1100 milljónir eftir skatta.

Fyrirtækið hefði hagnast enn meira í fyrra ef hefði ekki verið fyrir fastan eldsneytiskostnað. Wow Air gerði samninga um fast eldsneytisverð 2014 sem eru nú lausir og þvi kaupir félagið flugvélabensín á „spot verði“ en eldsneytiskostnaður er um þriðjungur af rekstrarkostnaði flugfélaga.

Skúli segist aldrei hafa tekið mark á svartsýnisröddum, heldur einbeitt sér á að byggja fyrirtækið upp.

„Í öllum mínum samskiptum við reynslubolta að utan, þá hafa þeir verið mjög imponeraðir með það sem við höfum verið að gera. Það hefur ávallt verið hvatningin, í stað þess að hlusta á svartsýnisröflið á Íslandi,“ segir Skúli.

Hann segir að Íslendingar verði að vanda sig í ferðaþjónustunni, því lítið megi út af bregða til að orðspor Íslands skaðist. „Þar er mest aðkallandi að við hefjum framvæmdir í Keflavík, ekki seinna en strax.“

Sjá viðtal við Skúla í meðfylgjandi myndskeiði.


Tengdar fréttir

WOW air skilar 1,5 milljarða hagnaði

Rekstrarhagnaður WOW air fyrir árið 2015 nam 1,5 milljörðum króna en það er viðsnúningur frá árinu á undan þegar flugfélagið tapaði 700 milljónum króna.

WOW air tvöfaldar sætaframboð sitt

WOW air mun á þessu ári bæta við sig tveimur nýjum vélum af gerðinni Airbus A321, árgerð 2016, og verða þær afhentar félaginu í maí og júní.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×