Lífið

Töfrandi lokastikla fyrir Beauty and the Beast

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Emma Watson fer með hlutverk Fríðu og Dan Stevens fer með hlutverk dýrsins
Emma Watson fer með hlutverk Fríðu og Dan Stevens fer með hlutverk dýrsins Vísir/Skjáskot
Lokastiklan fyrir kvikmyndina Beauty and the Beast kom á vefinn í gær og er hún vægast sagt töfrandi. Myndin, sem verður frumsýnd 17. mars næstkomandi, er leikin endurgerð af hinni klassísku teiknimynd Disney.

Einvalalið leikara ferð með hlutverk í myndinni en Emma Watson fer með hlutverk Fríðu og Dan Stevens fer með hlutvrk dýrsins. Þá leikur Ian McKellen geðvondu klukkuna Cogsworth, Ewan McGregor leikur hinn skrautlega Lumière og Emma Thompson fer með hlutverk Mrs. Potts.

Í nýjustu stiklunni sést einnig hin smeðjulegi Gaston og ljóst er að öllu er tjaldað til.

Þau Ariana Grande og John Legend fara með titillag myndarinnar sem heyrist undir stiklunni, sem má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×