Menning

Töfrafjallið er stórkostlegt landakort um nútímann

Friðrika Benónýsdóttir skrifar
Hópurinn í Davos á söguslóðum Töfrafjalls Thomasar Mann.
Hópurinn í Davos á söguslóðum Töfrafjalls Thomasar Mann. Mynd/Haraldur Jónsson
Töfrafjallið er yfirstandandi leiðangur hóps listamanna og fræðimanna sem hófst í október 2013 og meiningin er að standi, svona gróflega áætlað, fram á árið 2016 og ljúki með útgáfu bókverks,“ segir Birna Bjarnadóttir, doktor í bókmenntum og forsvarskona hópsins. „Við byrjuðum á því að fara til Davos í Sviss, þar sem Thomas Mann sviðsetti skáldsöguna Töfrafjallið og þar hófst leiðangurinn.“



Hópinn skipa fjórir myndlistarmenn, einn kvikmyndaleikstjóri og tveir úr hugvísindum. Þau hafa kynnt leiðangurinn í Berlín, á Hugarflugi Listaháskólans og í byrjun júní voru þau í galleríi Úthverfu á Ísafirði. „Þar vorum við í nokkra daga með dagskrá sem við kölluðum Andvökur,“ segir Birna. „Opnuðum galleríið fyrir bæjarbúum nokkur kvöld og spáðum og spekúleruðum í samtímanum, en það er einmitt þungamiðjan í þessum Töfrafjallsleiðangri að skoða okkar samtíma, bæði með hliðsjón af meginlandi Evrópu og upphafi tuttugustu aldarinnar, en það er að vissu leyti kjarninn í skáldsögu Thomasar Mann, sem er náttúrulega stórkostlegt landakort þegar kemur að nútímanum.“



Leiðangur heldur áfram á ráðstefnunni Art in Translation því í hádeginu á morgun verður Töfrafjallið með gjörning í Holu íslenskra fræða við Arngrímsgötu og á laugardaginn klukkan 17 verða þau í kapellu Sankti Jósefsspítala í Hafnarfirði. „Í kapellunni verðum við með gjörning og predikun en það sem við gerum í Holunni er meira í anda könnunarleiðangursins og þar verður ekki mikið talað. Við förum bara í leiðangur ofan í holuna og vonandi upp úr henni aftur.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×