Lífið

Töffaraleg piparsveinaíbúð í miðbænum

Marín Manda skrifar
Steinarr Lár, eigandi Kukucampers.
Steinarr Lár, eigandi Kukucampers.
„Ég er með eina reglu fyrir heimilið, ekkert hér inni má hafa verið keypt nýtt beint úr verslun. Kannski úr Góða hirðinum en flestir munirnir hér inni tengjast minningum og sögu,“ segir Steinarr Lár eigandi Kukucampers. Hann er smekkmaður og býr í einstakri íbúð í miðbænum sem hann hefur innréttað með sérstökum munum.

Grjótið í gólfinu týndi ég í Dritvík á Snæfellsnesi. Drumburinn kom úr garði foreldra minna en ég lakkaði toppinn á honum hvítan. Mér þykir gaman að færa náttúruna inn til mín og er með eitthvert blæti fyrir skinnum og feldum. Þarna má sjá villisvínsfeld, selskinn, rauðrefsfeld og einhverja fugla sem áttu frekar einhliða samskipti við haglabyssuna mína.

Brettin.
Ég elska bretti og líður aldrei betur en þegar ég renni mér. Ég safna hjólabrettum sem marka nýja stefnu í hjólabrettasögunni. Þarna má líka sjá brimbretti sem hlutaðist í sundur á stórum degi í Þorlákshöfn. 

Tónlistarsafnið.
Mér finnst ég ekki eiga tónlist nema ég eigi hana á vínyl.

Græni sófinn.
Poulder-sófinn er jafn fallegur og hann er óþægilegur. Ég get ekki gert gestum að sitja í þessu. 

Fyrsta hreindýrið sem ég felldi. Uppstoppað af Reimari hjá Lifandi uppstoppun. 

Brimbrettið var áður í eigu vinkonu minnar, Sofiu Mulanovich. Hún var heimsmeistari kvenna á brimbretti fyrir nokkrum árum og notaði þetta bretti til keppni. Haglabyssan á veggnum stendur fyrir veiðiarfleifð íslenska bóndans því hér voru engir séntilmenn til sveita. Það er búið að lakka þessa með vinnuvélalakki og búið að skjóta svo mikið úr henni að hólkurinn er pappírsþunnur. Myndin er af hreindýrum á Lónsöræfum. Blindur er bóklaus maður og því er hollt fyrir bifvélavirkjason úr Kópavoginum að göfga manninn. 

Ég drekk ekki mikið áfengi, því safnast þetta saman hjá mér. Ég starfaði lengi í áfengisgeiranum og safna áfengum viðhafnarútgáfum. Ég þyki góður kokkteilhristari en það er aðallega vegna þess að ég nota aðeins rándýrt hráefni. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×