Lífið

Tobba Marinós hætt: Sagði upp frá Balí

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Tobba Marinós er hætt á Skjánum.
Tobba Marinós er hætt á Skjánum.
Fjölmiðlakonan Þorbjörg Marinósdóttir, betur þekkt sem Tobba Marinós, hefur sagt starfi sínu á Skjánum lausu. Á fjórða tímanum í dag skrifaði hún starfsmönnum Skjásins kveðju frá Balí, þar sem hún sagðist vera að fá hættulega margar hugmyndir.

„Ég skrifa ykkur þessa kveðju úr 30 stiga hita á Balí í banastuði en hér fær maður hættulega margar hugmyndir og nú er kominn tími til að leyfa þeim að blómstra.“

Tobba segir Skjáinn hafa verið sitt annað heimili frá haustinu 2010.

Undir færsluna skrifar hún svo:

„Sólbrúnar kokteilkveðjur,

Ykkar Tobba.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×