Viðskipti innlent

Tjarnargatan vann til tveggja verðlauna

Sæunn Gísladóttir skrifar
Tjarnargötu teymið.
Tjarnargötu teymið. Mynd/M. Flóvent
Framleiðslufyrirtækið Tjarnargatan vann til tveggja verðlauna nýverið á hinum virtu „Digital Communication” verðlaunum sem haldin voru í Berlín. Verðlaunin voru fyrir „Hold Fokus” herferðina sem Tjarnargatan vann fyrir norska tryggingarfyrirtækið Gjensidige, Trygg Trafik og PR-opertørene segir í tilkynningu.

Herferðin var tilnefnd til tveggja verðlauna á „Digital Communication” verðlaununum og sigraði herferði í báðum flokkum, en þeir voru „Nýsköpun ársins” og „Samfélagsleg ábyrgð fyrirtækja”. Í báðum flokkum var fyrirtækið að etja kappi við þekkt alþjóðleg fyrirtæki á borð við Vodafone, Lufthansa, HSBC og fleiri.

Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í hinu þekkta Kino International kvikmyndahúsi í Berlín fimmtudagskvöldið 29. September.

„Hold Fokus” herferðin hefur áður unnið til verðlauna í Noregi auk þess sem herferðin hefur verið tilnefnd til alþjóðlegra verðlauna, t.d. Digiday verðlaunanna í Bandaríkjunum, auk hinna evrópsku Sabre og European Excelennce verðlauna.

Herferðin bendir á hættur þess að nota farsíma undir stýri og eftir að hún var sett af stað í Noregi spratt um mikil umræða um ökumenn sem halda ekki athygli við akstur vegna farsíma þar í landi. Talið er að herferðin hafi fengið um 30 milljón birtingar og var hún lofsungin af mörgum af helstu fjölmiðlum Noregs.

Herferðin var upphaflega framkvæmd á Íslandi undir nafninum „Höldum fókus” og vakti hún þá gríðarlega athygli, en um 35.000 einstaklingar dreifðu herferðinni á samfélagsmiðlum. Tjarnargatan kynnti svo nýverið nýjan lið í Höldum fókus sem braut blað í notkun Snapchat samfélagsmiðilsins sem markaðstóls á Íslandi. Hægt er að sjá afraksturinn hér.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×