Tjáningarfrelsi og ábyrgð kennara

Fréttablaðið Fastir pennar 17. febrúar 2012 06:00
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir
Steinunn Stefánsdóttir skrifar:
Frelsi til skoðana og frelsi til að tjá þær teljast til grundvallarmannréttinda. Engu að síður búa milljónir og tugmilljónir manna við mikil höft á frelsi til skoðanatjáningar. Í fjölmörgum þjóðlöndum varðar við lög að tjá sig um ríkjandi stjórnvöld og/eða trúarbrögð og viðurlögin geta jafnvel verið dauðarefsing.

Íbúar vestrænna ríkja búa ekki við þessar aðstæður. Samt sem áður er brýnt að standa vörð um réttinn til að hafa skoðanir og mega tjá þær.

Undanfarna daga hefur nokkuð verið rætt um rétt Snorra Óskarssonar grunnskólakennara og trúarleiðtoga til að lýsa þeim skoðunum sínum að samkynhneigð teljist synd og að laun syndarinnar sé dauði.

Í fréttum RÚV á laugardag benti Brynjar Níelsson, formaður Lögmannafélagsins, á að erfitt væri að meta hvort Snorri hafi með skrifum sínum gerst brotlegur við hegningarlög. „Það er þannig, þó menn hafi stjórnarskrárvarinn rétt til að tjá skoðanir sínar, þá eru takmarkanir á því," sagði Brynjar og vísaði þar til þeirrar greinar almennra hegningarlaga þar sem segir að óheimilt sé að ráðast með einhvers konar smánun á hóp manna, til að mynda vegna kynhneigðar.

Brynjar benti einnig á að vinnusamningar fólks gætu heft tjáningarfrelsi þess. „Það er bara þannig þegar við ráðum okkur í störf að þá getur það verið heft samkvæmt einhverjum reglum í vinnusamningi eða reglum á vinnustað," segir Brynjar og bendir á að í þeim tilvikum að reglur vinnustaðar séu brotnar án þess að um lögbrot sé að ræða geti viðurlög verið áminning eða jafnvel brottvikning úr starfi.

Í máli Snorra er þetta auðvitað kjarninn. Óháð því hvort ummæli hans varða við hegningarlög eða ekki þá er um að ræða kennara grunnskólabarna á unglingastigi; börn sem eru einmitt á þeim aldri að vera að gera sér grein fyrir kynhneigð sinni.

Í nýrri greiningu Þórodds Bjarnasonar og Ársæls Más Arnarssonar, prófessora við Háskólann á Akureyri, kemur fram að um tvö prósent nemenda í tíunda bekk segjast hafa orðið skotin í félögum af sama kyni. Til viðbótar má ætla að einhver hluti nemenda Snorra eigi samkynhneigt foreldri, systkini eða aðra ástvini.

Í sömu rannsókn kemur fram að sjálfsvígshugleiðingar séu tólf sinnum líklegri meðal samkynhneigðra unglinga en annarra og ítrekaðar tilraunir til sjálfsvíga 25 sinnum líklegri ef unglingur er samkynhneigður en ef hann er það ekki.

Í frétt blaðsins af könnuninni segir Þóroddur að niðurstöðurnar sýni ótvírætt að margir íslenskir samkynhneigðir unglingar upplifi höfnun og andúð, ekki síst í skólasamfélaginu. „Það er augljóst að þau þurfa á miklum stuðningi og skilningi að halda og kennarar og skólayfirvöld bera afar mikla ábyrgð á því að rækta samfélag þar sem þessir unglingar eru jafnvelkomnir og aðrir," segir Þóroddur.

Þessum nemendum á ekki að bjóða upp á kennslu manna sem líta á kynhneigð þeirra sem dauðasynd.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Bankablús

Viðbúið var að rekið yrði upp margraddað ramakvein þegar Landsbankinn tilkynnti um uppsagn...  

Meira
Fastir pennar 26. maí. 2012 06:00

Á Heimaey betur heima í ríkissjóði?

Ný Heimaey í eigu Ísfélagsins kom fyrir skömmu til heimahafnar í Vestmannaeyjum. Margir hr...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 12:53

Útlendingar og Íslendingar

Stjórnarfar í Kína er ömurlegt. Sérstaklega læt ég ógeðslega ritskoðunartilburði fara í ta...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Atvinna
  • Serblad
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Tjáningarfrelsi og ábyrgð kennara