Fótbolti

Tíu Valsarar höfðu betur gegn Víkingum | Markalaust hjá Magna og KR

Vísir skrifar
Magnamenn voru nálægt því að leggja KR. Myndin er frá því í sumar þegar Magni tryggði sér sæti í Inkasso deildinni.
Magnamenn voru nálægt því að leggja KR. Myndin er frá því í sumar þegar Magni tryggði sér sæti í Inkasso deildinni. Magni
Lengjubikarinn í fótbolta er kominn á fullt og voru sex leikir á dagskrá A-deildar í dag. Í A-deild kvenna skoraði Agla María Albertsdóttir tvö mörk þegar Breiðablik lagði FH.

Boðið var upp á tvíhöfða í Egilshöll annars vegar og Boganum á Akureyri hinsvegar.

Í Boganum urðu óvænt úrslit þegar Magni frá Grenivík gerði markalaust jafntefli við KR. Strax í kjölfarið mættust svo KA og ÍR þar sem Akureyringar höfðu betur með mörkum frá bræðrunum Hallgrími Mar og Hrannari Birni.

Í Egilshöll vann ÍBV 0-1 sigur á Fram áður en Íslandsmeistarar Vals lögðu Víkinga í Reykjavíkurslag þrátt fyrir að Valur hafi leikið manni færri stærstan hluta leiksins.

Í hádeginu vann Stjarnan öruggan sigur á Haukum, 3-1.



Úrslit og markaskorarar dagsins

A-deild riðill 1

Fram 0 - 1 ÍBV
 

0-1 Ágúst Leó Björnsson ('53) 

Víkingur R. 1-2 Valur

1-0 Nikolaj Hansen (´14)

1-1 Tobias Thomsen (´21)

1-2 Tobias Thomsen, víti (´87)

Rautt spjald: Andri Fannar Stefánsson, Valur (´18)

A-deild riðill 2

KA 2-1 ÍR
 

1-0 Hallgrímur Mar Steingrímsson (´20) 

2-0 Hrannar Björn Steingrímsson (´53) 

2-1 Aron Skúli Brynjarsson (´92) 

Magni 0 - 0 KR 

A-deild riðill 3

Stjarnan 3 - 1 Haukar 

1-0 Baldur Sigurðsson ('16) 

1-1 Haukur Ásberg Hilmarsson ('27) 

2-1 Hilmar Árni Halldórsson ('32) 

3-1 Sölvi Snær Fodilsson ('61) 

A-deild kvenna

Breiðablik 3 - 1 FH 

1-0 Alexandra Jóhannsdóttir ('40) 

2-0 Agla María Albertsdóttir ('44) 

3-0 Agla María Albertsdóttir ('61) 

3-1 Diljá Ýr Zomers ('64) 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×