Innlent

Tíu til fimmtán starfsmenn BUGL hafa veikst af myglusvepp

Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar
Starfsemi göngudeildar hefur verið takmörkuð.
Starfsemi göngudeildar hefur verið takmörkuð. vísir/vilhelm
Myglusveppur greindist í húsnæði göngudeildar BUGL við Dalbraut í byrjun síðasta árs og hafa framkvæmdir staðið yfir án þess að náðst hafi að koma í veg fyrir vandann. Í síðustu viku var starfsmönnum sent bréf þar sem tilkynnt var að takmarka þyrfti starfsemi göngudeildarinnar eftir að fleiri starfsmenn veiktust.

Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum eiga níu starfsmenn erfitt með að vera í húsnæði göngudeildar vegna myglutengdra einkenna. Í heildina hafa þó tíu til fimmtán starfsmenn á BUGL fundið fyrir einkennum síðustu misseri, mismiklum á hverjum tíma.

Enginn er þó fjarverandi frá vinnu til lengri tíma þessa dagana vegna myglu „en það koma upp dagar þar sem einkenni eru svæsnari og þá er starfsmaður frá vinnu, til dæmis einn í fyrradag og tveir í gær,“ segir Anna Dagný Smith, mannauðsráðgjafi kvenna- og barnasviðs.

Þeim starfsmönnum, sem ekki geta unnið vegna einkenna sem tengjast myglu, hefur verið útveguð starfsaðstaða tímabundið í öðru húsnæði Landspítala. Fréttablaðið hefur einnig rætt við starfsmann sem getur eingöngu verið í litlum hluta húsnæðisins og mætir því hvorki á starfsmannafundi eða í mötuneyti.

Þessa dagana eru framkvæmdir á fullu á þeim stöðum þar sem mygla og rakaskemmdir hafa greinst, segir í svari Landspítala. Stór hluti eldra húsnæðis BUGL hefur nú þegar verið tekinn í gegn og starfsemi þar því „að mestu hnökralaus“. Á göngudeild er aftur á móti eingöngu bráðaþjónustu sinnt. Nýjum málum hefur verið frestað, hópar felldir niður og eingöngu bráðamálum sinnt þar til ráðin verður bót á húsnæðisvandanum. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×