Körfubolti

Tíu tapleikir hjá Herði Axel og félögum í röð

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hörður Axel skoraði 11 stig í kvöld.
Hörður Axel skoraði 11 stig í kvöld. mynd/facebook-síða mitteldeutscher
Mitteldeutscher BC fékk skell, 96-66, gegn Telekom Baskets Bonn í þýsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld. Þetta var tíunda tap Mitteldeutscher í röð en liðið hefur hrapað niður töfluna á undanförnum vikum.

Fyrsti leikhlutinn var tiltölulega jafn en í 2. leikhluta tóku liðsmenn Bonn fram úr. Þeir breyttu stöðunni úr 30-28 í 51-31 á síðustu sex mínútum 2. leikhluta og leiddu með 20 stigum í hálfleik.

Það dró enn sundur með liðunum í seinni hálfleik en þegar uppi var staðið var munurinn 30 stig, 96-66.

Landsliðsmaðurinn Hörður Axel Vilhjálmsson spilaði í tæpar 22 mínútur fyrir Mitteldeutscher, skoraði 11 stig, gaf tvær stoðsendingar og stal boltanum í tvígang. Hörður setti niður fjögur af tíu skotum sínum utan af velli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×