Viðskipti innlent

Tíu sagt upp hjá 365 miðlum

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Starfsmennirnir fengu uppsagnarbréf sín í morgun.
Starfsmennirnir fengu uppsagnarbréf sín í morgun. Vísir/Andri Marinó
Tíu starfsmönnum var sagt upp störfum í morgun hjá 365 miðlum. Þetta kom fram á starfsmannafundi sem forstjóri fyrirtækisins, Sævar Freyr Þráinsson, boðaði til í morgun.

Starfsmennirnir störfuðu á ýmsum deildum innan fyrirtækisins að því er fram kom í máli Sævars. Tekjur í auglýsingasölu hefðu verið undir væntingum undanfarið og því hefði þurft að grípa til uppsagna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×