Innlent

Tíu nauðganir tilkynntar síðustu tvær vikur

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
vísir/pjetur/anton
Sex manns leituðu á neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisbrota í síðustu viku og fjórir vikuna þar á undan. Það sem af er árinu hafa 88 manns leitað aðstoðar á neyðarmóttökunni. Vikan 11.-17. júlí er enn fremur sú vika, ásamt 13.-19. júní, sem flestir fengu aðstoð neyðarmóttökunnar vegna kynferðisbrota.

„Í þeim hópinum núna voru margir þolendur sem ákváðu að kæra,“ segir Hrönn Stefánsdóttir, verkefnastjóri neyðarmóttökunnar, í samtali við Vísi. Að hennar sögn ákvað um helmingur þolenda að kæra.

Druslugangan var gengin um síðustu helgi og telur Hrönn að hún hafi haft jákvæð áhrif. „Þolendur sem hingað hafa leitað hafa verið ákveðnari en áður í að leita sér aðstoðar neyðarmóttökunar eftir brot. Það er mín tilfinning að umræðan og hve áberandi hún er stuðli að því að fólk sé reiðubúnara og öruggara að kæra málin til lögreglu,“ segir Hrönn. Hún bætir því við að starfsfólk neyðarmóttökunnar pressi aldrei á neinn að kæra.

Miklar sveiflur í fjölda tilkynntra brota

Í skriflegu svari til fréttastofu segir Hulda Elsa Björgvinsdóttir, sviðstjóri ákærusviðs hjá embætti Lögreglustjórans á höfuðborgarsvæðinu, að frá 10. júlí hafi fjórtán kynferðisbrot verið tilkynnt til embættisins.

„Í flestum tilvikum hafa brotaþolar fylgt málinu eftir með kæru. Rétt er þó að taka fram að lögreglan hefur rannsókn í málunum hvort sem henni hefur borist kæra eða ekki,“ segir í svari hennar.

Af málunum fjórtán þá varða tíu þeirra tilkynntar nauðganir. Fjögur brotanna áttu sér stað fyrir dagsetninguna 10. júlí en hin brotin tíu eftir þá dagsetningu.

Sé gert ráð fyrir, þó erfitt sér að fullyrða um slíkt, að ætlað brot hafi átt sér stað í sama mánuði og það var tilkynnt þá eiga að meðaltali, gróft áætlað, sextán brot sér stað í mánuði hverjum. Miklar sveiflur eru í tilkynntum brotum milli mánaða. Sé litið til maí 2015 til maí 2016 hafa tilkynnt mál sveiflast frá fimm málum á mánuði upp í 24 mál.


Tengdar fréttir

Lögreglustjóri telur að fólk leggi saman tvo og tvo

Lögreglan í Vestmannaeyjum ætlar ekki að upplýsa fjölmiðla um tilkynnt kynferðisbrot sem upp kunna að koma á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum fyrr en eftir hátíðina. Lögreglustjórinn í Vestmannaeyjum segir brotin vera sérlega viðkvæm þar sem þau gerist oft á milli tengdra aðila í lokuðu rými.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×