Erlent

Tíu grunaðir ISIS-liðar handteknir í Belgíu

Atli Ísleifsson skrifar
Lögregla lagði einnig hald á fjölda síma og önnur gögn sem gæti nýst við frekari rannsókn.
Lögregla lagði einnig hald á fjölda síma og önnur gögn sem gæti nýst við frekari rannsókn. Vísir/AFP
Tíu manns hafa verið handteknir í Brussel vegna gruns um að safna liðsmönnum fyrir hryðjuverkasamtökin ISIS.

Belgíska sjónvarpsstöðin RTL greinir frá því að handtökurnar hafi átt sér stað í úthverfum Brussel - í Molenbeek, Koekelberg, Schaerbeek og Etterbeek. Það var sérstakur saksóknari í Liége sem fyrirskipaði handtökurnar.

Lögregla lagði einnig hald á fjölda síma og önnur gögn sem gæti nýst við frekari rannsókn.

Saksóknari ákvarðar síðar í dag hvort að mennirnir verði ákærðir.

Ekki er talið að mennirnir hafi bein tengsl við hryðjuverkaárásirnar í París í nóvember.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×