Innlent

Tíu gerðu aðsúg að pilti

Aðsúgur var gerður að heimili fimmtán ára drengs í Breiðholti á fimmtudagskvöld. Pilturinn hringdi óttasleginn í lögregluna og tilkynnti að tíu piltar væru að reyna að brjótast inn til hans í þeim tilgangi að berja hann vegna óuppgerðs máls við einn í hópnum.



Að sögn varðstjóra lögreglunnar tvístraðist hópurinn þegar lögreglumenn komu á staðinn en nokkrir piltanna voru handteknir. Langan tíma tók að greiða úr málinu enda allir í hópnum fimmtán ára og því varð að kalla út foreldra til að sækja drengina á lögreglustöðina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×