Íslenski boltinn

Tíu FH-ingar völtuðu yfir Fjölni

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
FH-ingar fagna.
FH-ingar fagna. vísir/andri
Þó svo Fjölnismenn hefðu verið manni fleiri gegn FH í tæpan hálfleik þá sáu þeir ekki til sólar gegn Hafnfirðingum í Lengjubikarnum í kvöld.

FH valtaði hreinlega yfir Fjölni og vann 4-0. Manni færri unnu þeir 3-0. Það virðist því ekki vera vanþörf á því hjá Fjölni að skreppa í smá verslunarferð.

Kristján Flóki Finnbogason skoraði eina mark fyrri hálfleiks. Sam Hewson, Emil Pálsson og Atli Viðar Björnsson skoruðu svo í þeim síðari.

Þetta var fyrsti leikur liðanna í keppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×