Lífið

Tíu bestu jólaeftirréttirnir

Eva Laufey þekkir eftirrétti betur en flestir.
Eva Laufey þekkir eftirrétti betur en flestir.

Stjörnukokkurinn Eva Laufey Kjaran Hermannsdóttir heldur úti skemmtilegu matarbloggi  en í nýjustu færslunni hefur hún tekið saman girnilega og góða og jólarétti.

Eva Laufey hefur tekið saman tíu bestu jólaeftirréttina og má fara í gegnum uppskriftir af hverjum og einum hér að neðan. 

Ris A La Mande – Jólalegasti eftirréttur allra tíma og einstaklega ljúffengur. Algjörlega ómissandi um jólin.

Jóla Pavlova með Daim súkkulaðikremi og ferskum berjum. Þetta er kakan sem er fullkomin á jóladag.

Súkkulaði Panna Cotta sem hreinlega bráðnar í munni.  Með dökku súkkulaði og hvítu súkkulaði.

After Eight ísterta með berjum og súkkulaðis. Algjört sælgæti!

Tiramisu og Skyramisu  – báðir tveir einstaklega ljúffengir og fullkomnir með kaffibollanum.

Piparkökuís með saltaðri karamellusósu. Guðdómlega góður og einfaldur!

Bökuð ostakaka með sítrónu og ferskum berjum. Eitt sinn smakkað þið getið ekki hætt – ég lofa ykkur því.

Créme Brulée – ómissandi um jólin!

Súkkulaðibúðingurinn sem allir elska og fá ekki nóg af.

Súkkulaðikaka með mjúkri miðju. Svo góð að ég á erfitt með að lýsa henni – þið verðið að prófa þessa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×