Innlent

Tíu ára stúlka hætt komin: Féll í sjóinn við Krossanes

Gissur Sigurðsson skrifar
Fólk í nálægu húsi sá atvikið og aðstoðaði stúlkuna við að komast á land.
Fólk í nálægu húsi sá atvikið og aðstoðaði stúlkuna við að komast á land. Vísir/Pjetur
Tíu ára stúlka var hætt komin þegar hún féll í sjóinn við Krossanes á Akureyri um tíuleytið í gærkvöldi og meiddist eitthvað í fallinu. Hún hafði verið þar að leik með yngri stúlku, sem þegar hljóp af stað eftir hjálp.

Fólk í nálægu húsi sá atvikið, kallaði á lögreglu og aðstoðaði svo stúlkuna við að komast á land. Hún var þá köld, skelkuð og með blóðnasir. Hún var flutt á sjúkrahúsið til aðhlynningar og varð ekki meint af. Svo vel vildi til að sjór var ládauður þegar þetta gerðist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×