Fótbolti

Tíu ára dóttir fulltrúa FIFA fékk 212 milljónir

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Þetta er ekki skýrslan sem Blatter lét grafa en er nú komin fram í dagsljósið.
Þetta er ekki skýrslan sem Blatter lét grafa en er nú komin fram í dagsljósið. vísir/getty
Þýska blaðið Bild hefur komist yfir skýrslu FIFA sem var grafin fyrir þrem árum síðan en hún fjallar um hvernig forráðamenn frá Katar mútuðu forráðamönnum FIFA í von um að fá HM árið 2022. Það gekk upp.

Það var Bandaríkjamaðurinn Michael Garcia sem vann skýrsluna en hún er upp á 403 blaðsíður. Bild ætlar að birta hana alla saman. Garcia hætti hjá siðanefnd FIFA sama ár og skýrslan kom út.

Í skýrslunni kemur meðal annars fram að tíu ára dóttir forráðamanns FIFA fékk rúmar 212 milljónir króna inn á bankareikning sinn.

Einnig kemur fram í skýrslunni að þremur háttsettum FIFA-mönnum hafi verið flogið í einkaþotu til Ríó en meðlimir knattspyrnusambands Katar áttu þotuna.

Margt áhugavert á örugglega eftir að koma í ljós á næstu dögum er Bild heldur áfram að birta úr skýrslunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×