Lífið

Titraði af stressi en sló í gegn: „Ætla að setja sósu á þessar kinnar og borða þær“

Stefán Árni Pálsson skrifar
Mason er að standa sig virkilega vel í keppninni.
Mason er að standa sig virkilega vel í keppninni.
Móðir Jack Mason náði ekki að redda sér fríi í vinnunni og mætti hann því einn á svæðið þegar hann átti að koma fram fyrir framan fjögur þúsund manns í bresku útgáfunni af X-Factor á dögunum.

Mason  tók lagið It's a Man's Man's Man's World eftir James Brown og gerði það listilega vel.

Rétt áður en hann steig á sviðið titraði drengurinn einfaldlega af stressi og var við það að kasta upp.

Dómararnir voru allir á einu máli að hann hefði staðið sig mjög vel og flaug hann áfram.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×