Körfubolti

Titilklúðrið hjá Curry verða gamlar fréttir | Sjáðu auglýsinguna

Tómas Þór Þórðarson skrifar
NBA-deildin hefst á miðvikudagskvöldið eftir sumarfrí en þá hefst formlega titilvörn LeBron James og félaga í Cleveland Cavaliers. Cleveland vann sinn fyrsta NBA-titil í júní þegar liðið lagði Golden State í oddaleik í lokaúrslitinum.

Flestir voru búnir að spá Golden State titlinum þar sem liðið átti að vera það besta í sögunni. Það sló met Chicago Bulls frá 1996 yfir flesta unna leiki í deildakeppninni þar sem það lauk keppni með 73 sigra og aðeins níu töp. Það fór þó ekki alla leið eins og liðið hans Michael Jordan og vann titilinn.

Í nýrri og glæsilegri auglýsingu Under Armour heitir Curry því að gera þetta allt saman að gömlum fréttum eins og afrek sín. Þú ert ekki betri en það sem þú sýnir í næsta leik.

Þessa geggjuðu auglýsingu má sjá í spilaranum hér að ofan.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×