Lífið

Tíst um meint líkindi tveggja laga fer á flug

Stefán Þór Hjartarson skrifar
Þeir Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Ásgeir Orri Ásgeirsson og Sæþór Kristjánsson mynda StopWait­Go en þeir eru mennirnir á bak við nánast alla íslenska popp­smelli.
Þeir Pálmi Ragnar Ásgeirsson, Ásgeir Orri Ásgeirsson og Sæþór Kristjánsson mynda StopWait­Go en þeir eru mennirnir á bak við nánast alla íslenska popp­smelli. Vísir/GVA
Darri Tryggvason tísti um möguleg líkindi ársgamals lags síns og Fröken Reykjavíkur, smells Friðriks Dórs, en lagið er pródúserað af StopWaitGo-hópnum. Umrætt tíst hefur farið víða um samfélagsmiðlana og sitt sýnist hverjum um þessi meintu líkindi laganna. Tístið má sjá neðar í fréttinni.

Ertu með þessu tísti að segja að StopWaitGo séu að stela laginu þínu?


„Ég myndi nú ekki alveg segja það. Ég gerði lag fyrir sirka ári og ég var mjög ánægður með það og langaði að fá smá „feedback“ þannig að ég sendi þetta á Friðrik Dór og Ásgeir í StopWaitGo. Síðan kemur Fröken Reykjavík út og ég tengdi aðeins við það, fannst það svolítið svipað og fór að sýna fjölskyldu og vinum. Flestir voru sammála um að þetta væri svolítið líkt. Ég var bara sáttur, hugsaði að þeir væru kannski bara að nota „inspo“ frá mér í lagið. Það voru svo margir búnir að segja mér að þetta væri svipað þannig að ég ákvað að henda út tísti og það varð allt vitlaust,“ segir Darri Tryggvason.

Nú eru komin yfir fjögur hundruð læk á tístið og því hefur verið deilt meira en fjörutíu sinnum. Hafa þeir svarað eða haft samband við þig?

„Ásgeir er búinn að svara og segir að Ragnar bróðir hans hafi gert lagið. Hann segir að þetta sé acapella­ úr Glowie-lagi – sem ég trúi alveg. Ég ætla ekki að saka þá um að taka neitt frá mér. Mér finnst flott að fá viðurkenningu – ég er búinn að gera tónlist í þrjú ár og hef ekki fengið neitt svona áður.“

Þannig að þú ferð sáttur frá borði?

„Nokkurn veginn, pínu svekkjandi að þetta hafi verið líkt en ekki það sama. En heilt yfir er ég ánægður með að hafa fengið athygli og viðurkenningu fyrir tónlistina mína,“ segir Darri Tryggvason sáttur, enda hefur nafn hans ferðast víða í kjölfarið á tístinu hans.

Svona gerist bara

„Mér finnst þetta bara mjög fyndið og skemmtilegt. Ég gerði reyndar ekki þennan part í laginu, það var bróðir minn sem gerði hann, Pálmi Ragnar. Þetta er ekkert mál og ekki af Darra hálfu heldur.

Darri Tryggvason vakti athygli ?á Twitter á miðvikudaginn.
Ég var ekki einu sinni búinn að sjá skilaboðin frá Darra, þannig að það er ómögulegt fyrir okkur að hafa verið búnir að heyra lagið hans,“ segir Ásgeir Orri Ásgeirsson úr StopWaitGo inntur eftir viðbrögðum við tístinu hans Darra.

„Ég talaði beint við hann Darra og hann var mjög léttur og sendi mér á Facebook að hann væri ekki að saka okkur um að stela neinu. Ég sagði honum að lagið hans væri geðveikt. Svona kemur bara fyrir þegar menn eru að gera tónlist. Það er ekki eins og þetta sé eins, það er bara svipaður fílingur í þessum lögum. Við notuðum acapelluna af lagi með Glowie til að búa til þennan húkk sem um ræðir. Þetta er náttúrulega acapella sem við eigum og höfum einir aðgang að, hann hefur notað eitthvað annað og svona gerist bara,“ segir Pálmi Ragnar Ásgeirsson, StopWaitGo-meðlimur og sá sem á heiðurinn af umræddum hluta lagsins Fröken Reykjavík.

„Ég sagði við Darra að hann ætti endilega að senda mér meira efni og hver veit nema við byrjum bara að vinna saman út af þessu, það væri náttúrulega besta lendingin,“ sagði Pálmi Ragnar að lokum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×