Viðskipti erlent

Tíst Musk hafa áhrif á gengi bréfa í Tesla

Aðalsteinn Kjartansson skrifar
Gengi bréfa í Tesla Motors hækkuðu um þrjú prósent eftir að Musk tísti um nýja vöru.
Gengi bréfa í Tesla Motors hækkuðu um þrjú prósent eftir að Musk tísti um nýja vöru.
Fjárfestar virðast fylgjast grannt með Twitter-reikningi Elon Musk, forstjóra rafbílaframleiðandans Tesla. Í það minnsta virðist gengi bréfa í Tesla Motors taka kipp í hvert sinn sem hann tístir einhverju áhugaverðu. Quartz greinir frá þessu.

Í dag boðaði Musk óvænt nýja vörulínu frá Tesla sem er ekki nýr bíll. Flestir telja að fyrirtækið komi með stærri rafhlöður á markað sem nota má til að sjá heilu heimili fyrir orku. Tesla hefur ekki viljað gefa neitt uppi um þessa nýju vörulínu þrátt fyrir yfirlýsingar forstjórans.

Markaðurinn tók hins vegar við sér og hækkuðu bréf í Tesla um 3 prósentustig í dag, eftir tístið frá Musk. Það er þó ekki eina skiptið sem þetta hefur gerst. Aðeins nokkrir dagar eru síðan að Musk neitaði á Twitter-síðunni sinni að nota tístin til að hafa áhrif á hlutabréfaverð.

„Tímabundin hækkun á $TSLA hlutabréfum gerir augljóslega ekkert fyrir Tesla eða mig,“ tísti hann og fullyrti að hvorki hann né fyrirtækið væri að selja bréf.

Það þýðir þó ekki að tístin hafi ekki áhrif. 16. mars, þegar áðurnefnt tíst var sett í loftið, hækkuðu hlutabréf í Tesla um 3,7 prósent. 29. janúar tísti Musk um að hugbúnaðaruppfærsla fyrir Model S P85D bílinn gæti gert hann hraðskreiðari. Í kjölfarið hækkuðu bréf um 2,9 prósent.

Það eru þó ekki öll tístin sem skila sér í hækkandi hlutabréfaverði. 8. mars neitaði hann seinkunum á opnun Gigafactory rafhlöðuverksmiðjunnar í tísti en í kjölfarið féll hlutabréf í Tesla um 1,5 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×