Tíska og hönnun

Tískuþáttur tekinn á Íslandi ratar í fyrsta tímarit Louis Vuitton

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Tískurisinn Louis Vuitton er búinn að frumsýna tískutímaritið The Book. Fyrsta eintakið kemur út í október og síðan framvegis á hálfs árs fresti.

Tímaritið er 126 síður og í því má meðal annars finna tískuþátt fyrir herratísku sem var tekinn á Íslandi fyrr á árinu af ljosmyndaranum Peter Lindbergh.

Á forsíðunni er leikkonan Charlotte Gainsbourg en inni í blaðinu er einnig viðtal við frönsku leikkonuna Catherine Deneuve svo eitthvað sé nefnt. 

Ritstjóri tímaritsins er Sylvia Jorif og verður það fáanlegt á ellefu tungumálum. Þá verður þetta fyrsta tímarit Louis Vuitton sent til valinna viðskiptavina um heim allan.

Forsíðan.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×